Ja hérna
21.11.2008 | 17:31
Þingsályktunartillögu um vantraust á ríkisstjórnina hefur verið dreift á Alþingi.
Hvað er að þessum mönnum? Það er ekki einu sinni búið að setja niður hvernig á að koma hreint til verks eftir bankahrunið. Ætla menn virkilega að rjúka í kosningar strax? Sömu menn á lista og alles.
Hvað ef tillagan verður felld? Bera hana aftur fram í vor og síðan aftur næsta haust? Nei, ég vil bíða með þetta um sinn og ná andanum áður en menn rjúka til núna, bara til að reyna að ná völdum að því virðist. Menn ætla greinilega ekkert að reyna að koma krónunni á flot.
Maður spyr sig: Á að kjósa í hvert sinn sem skoðannakönnun er einhverjum hagstæð?
![]() |
Vantrauststillaga komin fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mun finnast olía undir Borgarfirði eystra?
20.11.2008 | 22:41
Merkileg frétt sem ég las í Austurglugganum og Svæðisútvarpinu á Austurlandi í dag.
Þar kemur fram sú tilgáta að hugsanlega nái flekinn sem geymir olíu á Drekasvæðinu inn undir Borgarfjörð eystra!
Olgeir Sigmarssonar hefur stundað rannóknir á fjallinu Hvítserk í Borgarfirði eystra sem sýna að þar er að finna zirkon-kristalla sem eru mörg hundruð milljón ára gamlir og því mun eldri en annað berg sem myndar Ísland.
Ekki bara það að þetta styðji þá kenningu að þarna sé huganlega olía undir þurru landi heldur er Hvítserkur þá líka elsta fjallið á Íslandi ef þetta reynist rétt.
Ef rétt reynist þá er ekki eftir neinu að bíða. Stefnum á rannsóknir strax á morgun.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 23:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Góður þáttur á RÚV Med slør og høje hæle
18.11.2008 | 21:38
Ég hef að undanförnu horft á danskann fræðsluþátt í sjónvarpinu sem heitir "Með blæju á háum hælum" Med slør og høje hæle. Það er óhætt að segja að þetta eru mjög áhugaverður þáttur. Eins og segir í kynningu:
Í þessum dönsku ferðaþáttum er farið um sex ríki í Austurlöndum nær og heilsað upp á ungt fólk í vinnu og frístundum. Anja Al-Erhayem fer með áhorfendur á staði sem fæstir vissu að væru til á þessum slóðum, meðal annars skíðabrekkur í Íran og diskótek og hommabari í Damaskus og Beirút.
Anja Al-Erhayem er 36 ára blaðamaður sem á danska móður og íraskan föður. Hún hefur búið í Danmörku alla ævi en oft farið til föðurlands síns og ræktað tengslin þar.
Mæli með þessum þáttum en þeir setja okkur inn í menningarheim sem flest okkar þekkjum ekki. Heillandi þættir.
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Af ljósastaurum og bæjarstjórum
18.11.2008 | 08:27
Tók mig til og skrifaði viðeigandi yfirvöldum í borginni bréf og bað þau vinsamlegast að koma sér hingað og laga ljósastaurinn sem er hér beint fyrir framan húsið mitt.
Málið er, að fyrir mörgum árum bjó hér náugni í stigaganginum, á neðstu hæðinni, sem skrifaði sömu yfirvöldum bréf, og heimtaði að skipt yrði um þennan staur því hann truflaði sig svo mikið þegar hann væri að horfa á fréttir. Ljósið barast inn um gluggann.
Þetta hefur alltaf pirrað mig enda eini staurinn sem er með ljósatýru fyrir lítinn göngustíg. Hef verið að horfa út þegar myrkrið hellist yfir og sé að minn staur er miklu lélegri en hinir staurarnir. Það gengur ekki að hér sé myrkur enda enginn snjór til að spara lýsingu.
Þannig að ég skrifaði bréfið og bað um að þessu yrði kippt í liðinn STRAX. Nú er að bíða og sjá hvort þetta virkar.
Ekki það að ég sé bjartsýnn á að bæjaryfirvöld séu snögg til. Drengurinn minn skrifaði Gunnari bæjarstjóra í Kópavogi einu sinni bréf og bað um hjólabrettapall á svæðið en fékk aldrei svar.
Gunnar hefur kannski metið það svo að þarna væri ekki atkvæði á ferð og ekki séð ástæðu að svara drengsa.
Já ég sá að Kópavogsbær auglýsir viðtalstíma bæjarfulltrúa: Gunnar er til viðtals kl. 18-19 þann 20. nóvember nk.. Ekki var það nú mikill tími. Ein klukkustund!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Evra, $ eða króna?
17.11.2008 | 22:30
Íslensk stjórnvöld hyggjast ganga í ábyrgðir fyrir Icesave-reikninga fyrir upphæðir upp að 21.000 evrum, um 3,6 milljónum króna, á hverjum reikningi. Þetta var sennilega skásta setningin sem ég fann í dag á útskýringu á fyrirhugaða lántöku ríkisins.
Það er svolítið fyndið að hlusta á ráðamenn okkar tala um lán sem þarf að taka á næstunni en þeir tala alltaf um milljarða en við þurfum oftast að geta í eyðurnar hvor þeir eiga við evru, dollar eða krónu.
Annars held ég að þeir vilji ekki tala um krónur því það stuðar fólk því þá er upphæðin svo há og meiri sársauki að heyra sannleikann. Alla veganna fyrir þá. Kannski eiga þeir í smá vandræðum að þylja upp alla þessa upphæð í krónum?
Einnig held ég að þeir vilji bara venja sig á að tala í evrum eða dollar.
Enda sagði ég að krónan kæmi upp um skuldafenið sem við eru föst í, enda engin smá upphæð. Það er ekki öll vitleysan eins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.11.2008 kl. 08:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hver á nú að halda uppi húmornum á þingi?
17.11.2008 | 16:01
Ja hérna! Á öllu átti ég von en ekki þessu. Guðni átti ekki sök á öllu því sem komið er en hann er drengur góður. Það verður söknuður af honum á þingi.
Þar sem þing kemur saman, er ekkert lengur gaman.
![]() |
Guðni segir af sér þingmennsku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Alvarlegt ef rétt reynist
17.11.2008 | 13:46
Ég trúi því ekki að utanríkisráðherra sé að vinna svona á bak við tjöldin en ef rétt reynist þá er þetta mjög alvarlegt mál.
Ég spyr bara í ljósi nauðungasamninga varðandi Icesave: Haldið þið virkilega að Evrópusambandið verði betra við okkur þegar við erum komin inn í ESB?
bretar verða fljótir að heimta aðgang að fiskimiðum okkar og ég tala nú ekki um hugsanlega olíu.
Ég er hikandi varðandi EVRU og ESB eins og er miðað við hvernig komið er fram við okkur. Icesave og lánið voru tveir óskildir hlutir en við þvinguð til að njörfa þetta saman að undirlagi breta.
![]() |
Drög lögð að umsókn um ESB-aðild? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Rafverk Bítlanna
16.11.2008 | 23:48
Paul McCartney segir að kominn sé tími til að tilraunaupptaka sem Bítlarnir gerðu árið 1967 fái að hljóma fyrir allra eyrum. Verkið heitir Carnival of Light (Ljósahátíð) og tekur 14 mínútur í flutningi.
Þetta mun hafa verið 5. janúar 1967 sem þeir fluttu þetta í EMI stúdíoinu í London en þeir voru að vinna í laginu "Penny Lane" bæði 4. og 6. jan. Þannig að þeir hafa tekið smá pásu frá plötugerð sinni til að flytja þetta rafverk.
Þess má geta að þetta mun hafa verið í fyrsta sinn sem Bítlarnir hafi tekið upp svona tónlist ef hægt er að tala um tónlist en þarna er nær eingöngu tilraunaverk fyrir þá sjálfa og ekki hafi átt nota á neina plötu. Verkið er í raun eftir Paul. John notaði svipaða tilraun í Revolution 9 sem var gefin út í lok árs 1968. Þarna er um að ræða alls konar rafhljóð, trommur, hljómar úr orgeli, vatnshljóð og svo framkalla þeir Paul og John alls konar hljóð. Orðin "Are you alright?" og "Barcelona!" hljóma oft í þessu verki. Það verður gaman að hlusta á þetta ef það verður gefið út. Eitthvað fyrir aðdáendur þeirra. Sem betur fer er enn til fullt af óútgefnu efni frá Bítlunum.
![]() |
Óþekkt tilraunaverk Bítlanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt 17.11.2008 kl. 00:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dapurlegt hlutskipti
16.11.2008 | 18:18
Verð nú að segja að mér finnst þetta hálf dapurlegt hlutskipti okkar í þessari deilu. En líklega varð að semja um þetta en þetta er algjört ippon bretum í vil.
Fyrir mér er þetta eins og skulda mafíósum og fá lán hjá þeim til að borga þeim til baka með afarkostum. Að Ingibjörg Sólrún og Geir skuli vera ánægð með þetta, vitandi ekki einu sinni hve ávísunin er há sem við þurfum að borga, segir bara sitt. úffffffff
![]() |
Icesave-deilan leyst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þjóðmál og mínar vangaveltur
15.11.2008 | 16:54
Ég er einn af þeim sem hugsa mikið um þjóðmálin í dag. Skrítið. Ekki það að ég hafi mikið vit á þeim en ég hef skoðun eins og allir aðrir.
Ég vil ekki að ríkið taki stórt lán. Ég er hræddur við alþjóðagjaldeyrissjóðinn og þau öfl sem þar eru á bak við. Ég vil að þjóðin reyni að skapa eins mikil verðmæti og hægt er reyni að snúa vöruskiptum við. Seljum meira en við kaupum.
Ég vil að við skoðum inngöngu í ESB gaumgæfilega áður en sú ákvörðun verður ofan á. Hverju munum við ráða með eitt atkvæði af tuttugu og átta? bretar munu greinilega þjösnast á okkur eins og þeir geta. Dæmin hafa sýnt það. Ég vil setja íslensku krónuna á flot svo við fáum raunhæfa krónu í takt við veruleikann þó svo að það verði sárt en það mun jafna sig og við munum ná okkur upp úr þessu.
Ríkið á að draga úr framkvæmdum nema þar sem mannþörf er svo ekki verði meira atvinnuleysi.
Svo vil ég kosningar en ekki fyrr en næsta haust því annars fáum við bara sama fólkið í stjórn. Flokkar munu ekki ná að skipta út ef kosið yrði t.d. í vor. Það á að skipta út forustufólki í Seðlabankanum, á alþingi og Fjármálaeftirlitinu því að peningastefnan hér á landi hafi brugðist hrapalega eins og allir vita.
Við getum komist út úr þessu ástandi en það mun kosta sitt. Kaupum íslenskt ef við getum. Við getum þetta.
Áfram Ísland.