Færsluflokkur: Heimspeki

"Gærdagurinn - Morgundagurinn - í dag"

Svona í tilefni þess að nýr dagur reis að morgni dags án stóráfalla.  Smile  

 

"Gærdagurinn - Morgundagurinn - í dag"

Það eru tveir dagar í hverri viku sem við ættum ekki að hafa áhyggjur af.

Tveir dagar sem ættu að vera lausir við ótta og kvíða.

Annar er gærdagurinn…

með sínum mistökum og áhyggjum,

göllum og glappaskotum,

sínum sársauka og kvölum.

 

Gærdagurinn er að eilífu liðinn og kominn úr okkar höndum.

Allir peningar heimsins geta ekki gefið okkur gærdaginn aftur.

 

Við getum ekki tekið til baka það sem við gerðum í gær,

né getum við þurrkað út eitt einasta orð sem við sögðum…

Gærdagurinn er liðinn!

 

Hinn dagurinn sem við ættum ekki að hafa áhyggjur af er morgundagurinn,

með sínu ómögulega andstreymi,

áhyggjum, sínum vongóðu fyrirheitum og lélegu framkvæmd.

 

Morgundagurinn er utan okkar seilingar.

Sól morgundagsins mun rísa annaðhvort í heiðskýru eða bak við skýjabakka,

en hún mun rísa.

Og þegar hún gerir það,

eigum við ekkert undir deginum,

því hann er enn ófæddur.

 

Því er aðeins einn dagur eftir "í dag".

Allir geta barist í orrustum eins dags.

 

Það er aðeins þegar við bætum við áhyggjum gærdagsins

og morgundagsins sem við brotnum saman.

 

Það er ekki upplifun dagsins í dag sem skapraunar fólki

það er söknuðurinn eftir einhverju sem gerðist í gær

og kvíðinn yfir því hvað morgundagurinn ber í skauti sér.

 

Lifum því fyrir einn dag í einu.

-Höfundur ókunnur-

 


Viðhorfið

Er alltaf að reyna að vera svo spekingslegur.   GetLost

 

Sko!   Ef þú heldur að þú getur gert þetta, þá er það rétt hjá þér. Þú getur.     En ef þú heldur ekki, þá er það sennilega skynsamlegt af þér.   


Hundar og pólitík

Eru hundar ekki eins og pólitíkusar?  Þeir gera allt til að þóknast þér!!   LoL  Eða var það öfugt?  Whistling

Óskin

Svo er þetta með drauminn.  Dreymdi um daginn að eitthvað gott myndi rætast.  

Er ekki draumurinn það fyrsta svo eitthvað gerist?   Blush

 

Það kostar ekkert að láta sig dreyma.    Cool  


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband