Dagbókin segir
4.12.2008 | 14:06
Dagbókin segir í dag:
Bros frá þér getur fært einhverjum hamingju, jafnvel þótt
viðkomandi líki ekki við þig.
Ef þér finnst heimurinn hafa snúist gegn þér, líttu þá tilbaka
Mundu alltaf eftir hrósinu sem þú færð. Það kostar ekkert að gefa hrós.
Mohandas K. Gandhi:
Forgiveness is choosing to love. It is the first skill of self-giving love.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 14:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bitur Dani sem hatar okkur!
3.12.2008 | 16:02
Þar er alltaf sárt að heyra og lesa svona viðhorf um okkur þegar flest okkar gátum ekkert af þessu gert hvernig komið er hér á landi. Í rauninni er þetta ömurlegt hvernig reiði og illur hugur beinist að þjóðinni sjálfri. Fyrir mér jaðrar þetta við illgjarnan hroka í Uffe og ég vona svo sannarlega að aðrir hugsi ekki svona um heila þjóð.
Ekki tók ég frekar en flest ykkar þátt í þessu banka- eða fjárfestingaævintýri.
Mér finnst eiginlega alveg ömurlegt að finna þá reiði og illhug gegn Íslendingum eins og kemur fram í greinaskrifunum í Ekstra Bladet. Kannski bara bitur Dani? Vonandi hætta menn að kenna heilli þjóð um hvernig komið er fyrir okkur.
![]() |
Frekja og hroki aðgangsorð íslenska helvítisins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Meira af John Lennon
3.12.2008 | 09:10
Hérna er merkilegt viðtal sem fjórtán ára strákur að nafni Jerry Levitan tók við John Lennon en Jerry komst inn á hótelherbergi Johns er hann var staddur í Toronto í Kanada árið 1969. Að sjálfsögðu var rætt um friðarboðskap og á hann líka vel við í dag. Þess má geta að þetta myndband var nýlega sett á netið.
Til gamans má geta þess að í ævisögu Erics Clapton kemur fram hans hlið á tónleikum með Lennon í Toronto (trúlega á sama tíma og þetta viðtal á sér stað?) en honum var ekki skemmt þegar Lennon yfirgaf bandið strax eftir tónleikanna og skildi þá farlausa eftir í borginni. Hvet alla til að lesa bók Claptons.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fullveldisdagurinn 1. desember
1.12.2008 | 14:12
Í dag er 1. desember og Fullveldisdagur okkar Íslendinga. Þegar ég var krakki þá var alltaf gefið frí í skólanum á þessum degi en við spáðum ekkert sérstaklega af hverju verið var að gefa okkur frí. En það er ekki að marka enda ég yfirmáta latur í skólanum. Það var svo þegar amma sýndi mér skírnarvottorðið hennar frá kónginum, að ég áttaði mig á allt í einu hve stutt var síðan Danir höfðu stjórnað hér. Það þurfti auðvitað að vera eitthvað nærtækt til að vekja áhugann.
Hvað er eitt fullveldi á milli vina?
Árið 1918 þegar þjóðin varð fullvalda hafði gengið á ýmsu þetta ár þegar sambandslögin tóku gildi og við höfðum áfram danskan konung. Þetta ár gaus Katla og eyddi bæjum á Suðurlandi. Veturinn 1917-1918 var sá kaldasti í manna minnum og hefur gengið undir nafninu frostaveturinn mikli. Það var meira en Katla sem gaus á þessu ári. Spánska veikin herjaði um landið þennan vetur. Var það skæð inflúensa sem lagði mörg hundruð manns í gröfina, aðallega í Reykjavík og nágrenni. Það má segja að fullveldinu hafi verið fagnað hljóðlega í skugga þeirra hamfara er fylgdu spánsku veikinni árið 1918. Kannski ekkert skrítið að þjóðin hafi valið 17. júní sem þjóðhátíðardag?
Sem betur fer er ástandið núna ekkert í líkingu við það sem þjóðin þurfti að upplifa þá. En vonandi sjáum við til sólar fljótt og endurmetum verðgildi okkar að nýju.
Endurreisnarsjóður Gott og vel en
28.11.2008 | 13:22
Verið er að undirbúa að stofna endurreisnarsjóðs á vegum verkalýðshreyfingarinnar, atvinnurekenda, lífeyrissjóða og ríkisins.
Gott og vel en bíðum nú við. Það verður fróðlegt að sjá þessa nefnd sem væntanlega verður stofnuð, úthluta fjármunum sjóðsfélaga. Hverjir eigi að fá hjálp og hverjir ekki. Eins gott að reglur verði skýrar og ekki fari af stað vina- eða pólitískúthlutun.
Það ætti líka að styðja þá sem eru að missa vinnuna enn betur með einhverjum ráðum. Finna hvataleiðir fyrir fólk til að fara aftur í skóla. Fella niður hluta af verðtryggingunni svo eitthvað sé nefnt.
![]() |
Endurreisnarsjóður í bígerð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stór misstök
27.11.2008 | 22:05
Frumvarp um breytingar á lögum um gjaldeyrismál
Sammála Vilhjálmi Egils. Held að þetta frumvarp sem er verið að troða í gegnum þing núna, muni stórskaða íslenskt viðskiptalíf og færir viðskiptahætti aftur til ca. ársins 1980.
Alltaf hættulegt þegar svona frumvörp eru sett í gegn án þess að "láta lesa þau yfir" áður.
![]() |
Mun stórskaða viðskiptalífið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Göngutúr í myrkrinu
25.11.2008 | 00:23
Smá blogg fyrir kvöldið. Skellti mér út í rigningarúðann seint í kvöld eftir að hafa horft á borgarfundinn í Háskólabíó í kvöld. Mikið er nú gott að labba í hressandi haustveðrinu, já og nóvember að klárast en samt eins og það sé september.
Þó að það sé snjólaust þá er varla hægt að tala um myrkur hér á höfuðborgarsvæðinu. Ljósin sjá til þess.
Hrafninn fékk að sjálfsögðu skammtinn sinn en hann hefur notið góðs af matarafgöngum undanfarið.
Páfagarður "fyrirgefur" John Lennon
23.11.2008 | 13:44
"Blað, sem gefið er út í Páfagarði, hefur fyrirgefið John Lennon ummæli, sem hann lét falla fyrir rúmum fjórum áratugum, um að Bítlarnir væru vinsælli en Jesús. Í grein blaðsins er farið lofsamlegum orðum um Bítlana og sagt að Lennon hafi bara verið ungur maður að monta sig".
Þó fyrr hefði verið. Er það ekki hluti af kristni að fyrirgefa? Ég hafði oft og mörgum sinnum hugsað út í þetta. Af hverju er svona mikil heift í trúarbrögðum? Er ekki fyrirgefning jafn nauðsynleg og kærleikur?
Þar fyrir utan þá voru í gær 40 ár frá því að Hvíta albúmið kom út og er að mínu mati meiriháttar verk hjá Bítlunum.
![]() |
Páfagarður fyrirgefur" Lennon |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Móðgaður út í krumma
23.11.2008 | 13:20
Ég er hálf fúll út í krumma. Tók mig til og fór út með matarafganga til að færa honum. Reyndar gerði ég það í skjóli myrkurs svo allir íbúar svæðisins yrðu ekki varir við þetta. Var alveg sannfærður um að hrafninn myndi sko nota sitt langa nef til að finna kræsingarnar.
Svo kom næsti dagur og ég út í glugga. Viti menn krummi kom og flaug yfir án þess að líta niður, hvað þá til hliðar og ég sem hélt að þeir myndi sko renna beint á lyktina.
Eins og ég var nú búinn að hæla þessum fuglum í gegnum tíðina. Kannski ætti ég að læða svona einum hákarlabita með svo þeir fái almennilega lykt?
En ég ætla sko ekki að gefast upp. Næst fæ ég mér bara flagg til að sýna þeim hvar þeir geti matast næst.
Alltaf er nú samt gaman að horfa á krumma leika listir í loftinu.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Kreppujeppar
22.11.2008 | 16:57
Fór í búð í dag sem er svo sem ekkert merkilegt. Jú, það voru allir að kaupa jólavörur, nema ég. Ég var bara að kaupa sokka og vettlinga fyrir drenginn sem er að fara í skólaferðalag í næstu viku.
En það sem mér þótti merkilegt var að ég sá fyrir utan búðina nokkra kreppujeppa sem allir voru auglýstir til sölu. Það kreppir víða að því miður.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)