Færsluflokkur: Sjónvarp

Veðurfræði

Var að hlusta á veðurþul Stöðvar tvö.   Hún var auðvitað að vanda sig voða mikið og gerði þetta skilmerkilega.    

"Það eru margar lægðir á leiðinni"  sagði hún.      Ætli það séu mörg veður eða margar rigningar á veðurkortinu?  

Nei bara spyr.  Whistling      

Það er sko ekkert u í orðinu pylsa.   Devil


Góður þáttur á RÚV Med slør og høje hæle

Ég hef að undanförnu horft á danskann fræðsluþátt í sjónvarpinu sem heitir "Með blæju á háum hælum" Med slør og høje hæle.   Það er óhætt að segja að þetta eru mjög áhugaverður þáttur.   Eins og segir í kynningu: 

Í þessum dönsku ferðaþáttum er farið um sex ríki í Austurlöndum nær og heilsað upp á ungt fólk í vinnu og frístundum. Anja Al-Erhayem fer með áhorfendur á staði sem fæstir vissu að væru til á þessum slóðum, meðal annars skíðabrekkur í Íran og diskótek og hommabari í Damaskus og Beirút.

Anja Al-Erhayem er 36 ára blaðamaður sem á danska móður og íraskan föður. Hún hefur búið í Danmörku alla ævi en oft farið til föðurlands síns og ræktað tengslin þar. 

Mæli með þessum þáttum en þeir setja okkur inn í menningarheim sem flest okkar þekkjum ekki.    Heillandi þættir. 


Framlenging á leik

"Það stendur yfir framlenging og staðan jöfn"  sagði  þulur RÚV sagði í kvöld.   

Bíddu!!   Stendur ekki yfir einhver leikur sem þá er væntanlega búið að framlengja?    Nei ég bara segi svona.   Whistling


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband