Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Vil ekki fjölpóst
7.5.2008 | 12:43
Nei nei! Þórunn er fylgjandi því að sett verði lög sem tryggja almenningi rétt á að hafna fjölpósti!
Það yrði nú frábært ef hún kæmi þessu litla máli í gegn en mér hefur fundist hingað til að hún hafi verið ofurliði borin í umhverfismálum, eins og t.d. málin í kringum fyrirhugað álveri í Helguvík. En hvað um það. Ég vil ekki sjá neinn ruslpóst í mínum póstkassa.
Nógu mikið samt. Vil helst banna hann með öllu eða það ætti að fá leyfi til að setja svo póst í póstlúgurnar.
Ég vil senda öll þessi fríblöð og auglýsingapésa til baka þaðan sem þetta kom (helst í ábyrgðarpósti). Senda að auki reikning, því það kostar að aka þessu rusli í gámanna.
![]() |
Hægt verði að hafna fjölpósti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 15:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Greinilega ekki sama hver er!
5.5.2008 | 22:59
Þetta er nú bara fyndið.
Mynd af leikkonunni Lindsay Lohan, sem lögreglan tók af henni þegar hún var tekin fyrir ölvun við akstur í Los Angeles í fyrra, var birt í heilsíðuauglýsingu í bandarísku dagblaði fyrir helgina. já já Víti til varnaðar,
nema hvað það voru samtök veitingamann og áfengissala sem kostuðu auglýsinguna. En þau berjast gegn lögleiðingu nýrrar tækni sem ætlað er að koma í veg fyrir að ölvað fólki geti startað bílum. (líklega verða farþegar að standa úti á meðan allsgáður ökumaður startar bílnum!!) Samtökin vilja meina að þetta geti komið í veg fyrir að fólk geti neytt áfengis í hófi, t.d. með mat.
Ég segi bara: Hvað er að þessum mönnum?
Í auglýsingunni er texti sem segir að þessi tækni væri góð fyrir Lohan, en slæm fyrir flesta aðra.
Lohan hefur sennilega aldrei keypt mat né vín hjá þessum mönnum og því sé þetta gott fyrir hana en aðrir sem ráfa inná veitingastaði og sötra rautt eða bjór mega keyra heim eftir matinn.
Þetta er nú meiri tvískinnungshátturinn.
![]() |
Lögreglumynd af Lohan notuð í auglýsingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt 6.5.2008 kl. 08:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ætluðu Bandaríkin að kaupa Ísland árið 1870?
29.4.2008 | 15:05
Það er sagt að bestu kaup veraldar fyrr og síðar hafi átt sér stað þegar Bandaríkjamenn keyptu Alaska af Rússum árið 1867 fyrir aðeins 7,2 milljón dollara. Á þeim tíma voru þessi kaup álitin hin mestu ruglkaup enda Alaska bara auðn sem enginn hafði áhuga á.
Ég man eftir því að hafa lesið grein í Lesbók Morgunblaðsins um þetta mál þegar ég var ungur. Ég var þá staddur í bókaherbergi afa míns og var að fletta gömlum blöðum sem hann átti og rak augun í grein eftir íslenskan mann sem var að skrifa um kaup Bandaríkjamanna á Alaska. Svo fór ég að rifja upp að í þessari sömu grein (að mig minnir) hafi komið fram að Benjamín nokkur (man ekki seinna nafnið) hefði samið skýrslu þar sem fram kom hugmynd um að Bandaríkin myndu kaupa bæði Ísland og Grænland af Dönum en sem betur fer náði það ekki fram að ganga. Þar var sagt að kaupin á Alaska hafi verið of stór biti, enda 7 milljón dollarar miklir peningar í þá daga, svo hugmyndin um kaup á öðru einskynsmannslandi var snarlega mokað út af skrifborðinu.
Þegar ég var í Seattle 1984 þá heyrði ég þá kenningu að Alaska hefði bara verið keypt til að gera Bretum lífið leitt en Bretar stýrðu Kanada á þessum tíma og voru nýbúnir að tapa stríðinu í Bandaríkjunum og það hafi pirrað suma í USA að vita af Bretunum þarna rétt norðan við landamærin.
Ekki í fyrsta sinn sem litlu mátti muna að Ísland eignaðist nýjan húsbónda því það er vitað að Bretar veltu fyrir sér að hernema landið í byrjun 19 aldar þegar þeir voru í Napoleonsstríðinu við Frakka af því að Danir stóðu með Frökkum.
En í dag er staðan önnur og má kannski velta því fyrir sér hver staðan væri í heiminum í dag ef kaupin á Alaska hefðu ekki orðið að veruleika. Kannski hefur Alaska reddað landinu út úr olíukreppunni (fyrri) þegar olíuleiðslan var lögð þvert yfir fylkið til að anna eftirspurn Bandaríkjamanna! Var ekki í fréttum núna um daginn að Bush vildi ólmur fara í nýjar olíulindir þarna norðurfrá og leggja aðra leiðslu þvert yfir Alaska svo þeir verði ekki eins háðir olíunni í Miðausturlöndum?
Það má kannski segja að Rússar hafi gert heiminum ómeðvitaðan greiða með því að selja Alaska! Hvað hefði gerst ef Rússarnir hefðu ekki selt? Ég held að þá væri t.d. hasarinn í Arabaríkjunum enn meiri og olíuverð mun hærra. Þetta er jú forðabúr Bandaríkjanna í vissum skilningi.
Það skal tekið fram, að þetta eru bara vangaveltur hjá mér og ekki nákvæm frásögn. Það væri gaman að grafa upp þessa grein til að segja nánar frá eða hafa link inn á, ef hún er til á netinu.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 15:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Byggingavinna í hjáverkum
28.4.2008 | 00:07
Hef áður sagt frá smíðavinnunni sem ég er í hjá bróður mínum. Í dag var stór dagur hjá okkur, því við brutum niður vegginn sem skildi að nýbygginguna og íbúðina. Heilmikið puð en við nutum aðstoðar frá mági okkar enda sá fílefldur. Svo nú erum við farnir að sjá fyrir endan á þessu. Næst er að klára að mála. tengja rafmangið og leggja parketið. Jú svo er smávinna eftir í bárujárninu en sú vinna er nánast búin líka.
Ég hef reyndar ekkert komið nálægt málningunni eða rafmagninu.
Svo það hefur verið nóg að gera, en maður má nú ekki gleyma uppeldinu á börnunum mínum tveimur en þau hafa verið ótrúlega þolinmóð á þessum þvælingi hjá mér. En mikið er nú gott að geta hjálpað öðrum.
Þar sem ég er svona upptekinn út í bæ þá þyrfti ég eiginlega að kaupa mér svona eina ryksugu sem er eins og gæludýr: Hún hreinsar húsið á meðan ég er vinnunni og fer í hleðsludallinn sinn þegar hún er svöng; nei ég meina þegar hún er að verða rafhlöðulaus. Vandamálið er að hún kostar mange penge (að mér skilst) eða í kringum 50 þúsund krónur.
En hvað er það ef hún stendur sig vel.
Hún er líka klók sem köttur því hún lærir víst hvar mestu óhreinindin voru síðast þegar hún fór yfir svæðið og hvar er óþarfi að hreinsa. Erum við ekki eins? Erum ekkert að hreinsa aftur og aftur þar sem er aldrei skítur. Svo held ég líka að hún sé finn félagi fyrir köttinn. Þannig að...........
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 00:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
GúrbangúlíjMalíkgúlíjevítsjBerdímúkhammedov
24.4.2008 | 22:37
Nú skil ég af hverju það eru nánast aldrei sagðar fréttir frá Túrkmenistan. Það er ekki nokkur leið fyrir fréttamenn að segja t.d. nafnið á forsetanum þeirra: Gúrbangúlíj Malíkgúlíjevítsj Berdímúkhammedov.
Prófið bara að láta vefþuluna segja nafnið. Vefþulan.
![]() |
Tímatalinu breytt í Túrkmenistan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sigur Rós í Abbey Road Studios
24.4.2008 | 13:08
Sigur Rós í Abbey Road að taka upp fimmtu plötuna. Það er greinilega heilög stund hjá þeim sem fá að snerta hljóðfærin sem notuð voru af Bítlunum á sínum tíma. Orri Páll trommari sagði að þetta væri áhrifarík stund fyrir þá í Sigur Rós.
Gaman að sjá hvað Bítlarnir eru áhrifamiklir hjá ungum tónlistarmönnum enn í dag. Enda bestir.
![]() |
Sigur Rós í Abbey Road |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Gleðilegt sumar
24.4.2008 | 12:37
Til allra sem ég þekki, bæði vinir og vandamenn sem og allir bloggvinir.
GLEÐILEGT SUMAR OG TAKK FYRIR VETURINN ...............sem er bara búin að vera ágætur, þó það hafi verið smá snjór í vetur. En hvað er smá snjór miðað við fannfergi.
Hver á stærstu flautuna?
22.4.2008 | 21:23
Eitthvað hefur túrinn kostað út á Álftanes. Hvað hefur Abbas svo sem gert þeim? Kannski verður þetta það eina sem hann talar um úr Íslandsferð sinni; hundfúlir trukkabílstjórar með mikla flautuþörf.
![]() |
Ósáttir við myndatöku lögreglu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Flott mamma
22.4.2008 | 12:55
Það mættu fleiri taka sér þessa mömmu á Akranesi til fyrirmyndar. Lögreglan lét foreldra ökumanns vita að kvartað hefði verið ítrekað undan hraðakstri ökumannsins en hann neitaði skargiftum í viðræðum við lögreglu. Mamma hans gerði sér lítið fyrir og tók bílinn af kappanum. Flott hjá lögreglunni að láta foreldranna vita.
Því miður alltof mikið af spyrnugaurum í umferðinni.
![]() |
Tók bílinn af syninum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um hvíldarstaði bílstjóra
15.4.2008 | 11:21
Var að lesa frétt um undanþágutillögur samgönguráðherra um hvíldarstaði bílstjóra. Gott að skæruverkföll og verkleg-mótmæli skuli vera það eina sem virkar hér á landi, eða þannig.
Hnaut um eina setningu í tillögunni: "..... Þá er einnig farið fram á að almennur aksturstími fram að vinnuhvíld verði 5 klukkustundir á akstursleiðinni milli Reykjavíkur og Freysness á Austurlandi, en ekki er um aðra fýsilega hvíldarstaði fyrir bílstjóra að ræða á þeirri leið." Ekki vissi ég að það væri ekki fýsilegt að gista t.d. í Vík eða á Kirkjubæjarklaustri, nú eða á Hvolsvelli en það er kannski komin í bílstjóranna spenningur að komast heim t.d. þegar þeir nálgast Reykjavík? Það er gott að gista í Vík.
Menn eru kannski svo hressir þegar þeir leggja af stað suðurleiðina, austur á land að þeir geta alveg keyrt í einum spretti austur í Freysnes?
Nei, bara segi svona. Auðvitað er gott að fá svona reglur lagaðar svo þær hennta okkur hér á Fróni.
![]() |
Sótt um undanþágu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |