Hver á stærstu flautuna?

Eitthvað hefur túrinn kostað út á Álftanes.    Whistling    Hvað hefur Abbas svo sem gert þeim?  Kannski verður þetta það eina sem hann talar um úr Íslandsferð sinni; hundfúlir trukkabílstjórar með mikla flautuþörf.    Smile


mbl.is Ósáttir við myndatöku lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Ætli mennirnir hafi ekki ástundað sparakstur.....allavega óku þeir á jöfnum hraða sem leið lá út á nesið.....

Fanney Björg Karlsdóttir, 22.4.2008 kl. 23:02

2 Smámynd: Marinó Már Marinósson

 Í fyrsta og lága drifinu með mótorinn í botni, lúsast þeir áfram á 4 km hraða.     Eyðsla 55L/100km.  

Marinó Már Marinósson, 22.4.2008 kl. 23:12

3 identicon

marinó ég bara spir kaupir þú mjólk, brauð, kjöt, karteflur og mat handa börnunum þínum, ef svo er þá ætturu aðeins að spá í þessu hinn almenni flutningabílstjóri er búinn að étta þessar hækkanir að miklum hluta sjálfur en hvað skeður ef hann myndi demba þessu útí verðlagið ?

hefur gert þér grein fyrir að allt sem þú notar dagsdaglega er einhvertíma flutt með flutningabílum eða ertu virkilega svona einfaldur að halda að þetta kanski hafi bara sprotið af vörutrénu sem bónus geimir inná lager ?

það er búinn að vera 6% hækkun á gjöldum vörubíla en þirfti að vera nálægt 40% til að þetta gætti geingið upp, en það vill svo til að við erum líka neytendur sem erum að standa í þessu og við þurfum líka að hugsa um budduna á heimilinu.

má ég benda á að sumir bílar eru nú bara að eiða 55L/100km í venjulegum akstri svo það sínir hvað þú hefur mikla þekkingu á þessu :D

Jón Heiðar (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 01:26

4 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Sæll Jón Heiðar. Eftir að hafa lesið mig í gegnum þetta hjá þér þá finnst mér rökin hjá þér ekki nægjanlega mikil til að hafa samúð með mönnum sem þvinga saklaust fólk í að komast leiðar sinnar. Þar fyrir utan er líka alveg óþarfi af þér að vera með skæting þó svo að ég hafi skoðun á þessu máli. Ég hef ferkar verið að brosa af þessum aðgerðum frekar en hitt.

 Ég hef ekkert á móti því að menn fái sómasamleg laun fyrir vinnu sína en ég er bara á móti því að menn beiti aðra þvingunum í að komast leiðar sinnar, bara til að ná fram prívat markmiðum sínum því þetta snýst um meira en eldsneyti hjá þeim.  Einhversstaðar sá ég að 4x4 jeppaklúbburinn, sem tók þátt í þessu um daginn, fengi 15 kr. afslátt hjá Shell.  Væri ekki hissa á ef vörubílaeigendur hefðu svipuð kjör!!  Svo innskatta þeir allt hjá sér.   Þú talar um að ef þeir myndu demba þessu út í verðlagið?  hmmm??????

Hvernig findist þér ef bílstjórarnir mættu í Bónusverslanir og héldu viðskiptavinum hennar í herkví inn í búðinni í svona 2 tíma á dag, bara til að mótmæla of háu matvælaverði? Engin fengi að fara út fyrr en búið væri að lækka matvælaverðið.

 Hvað heldur þú að margir af þessum malarbílstjórum hafi flutt mikið af vörum fyrir Bónus? Bónus á sína eigin vöruflutningabíla og finnst örugglega ekkert mál að flytja vörur sínar frá hafnarbakkanum í verslanir hér á höfuðborgarsvæðinu.   Byko og Húsasmiðjan eru líka með sína eigin bíla í vöruflutninga.  Þar fyrir utan finnst mér sóun að vera að flytja vörur landleiðina út á land.  Það á að flytja sem mest af vörur sjóleiðina.  

Já eyðslan.  Ég þykist vita að sumir þessa bíla eyða mun meira en 55L/100 enda var þetta meira sagt í gríni en alvöru við vinkonu mína hér að ofan og ætla ekki að munnhöggvast um það við þig, enda þarf ég þess ekki, þar sem ég rek stóran flota af bílum og tel mig þekkja nokkuð vel hvernig er að reka þá.

Marinó Már Marinósson, 23.4.2008 kl. 10:37

5 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Smá leiðrétting:   ".......mikil til að ég hafi samúð með mönnum sem þvinga saklaust fólk í......"

Marinó Már Marinósson, 23.4.2008 kl. 10:39

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

En hvernig fannst ykkur sjalið hans...... hvað heitir hann Sturla?

Hrönn Sigurðardóttir, 23.4.2008 kl. 22:32

7 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Gleðilegt sumar Marinó. 

Marta B Helgadóttir, 24.4.2008 kl. 11:15

8 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Sástu hann í gær í Kastljósinu í gær?  Hann var eins og Örn þegar hann er að leika í Spaugstofunni þann sem kennir Norðmönnum um allt hvernig komið er. Nánast öllum spurningum var svarað með spurningum.    "Þetta er allt ríkistjórninni að kenna........  Geir og þeir þarna niður frá..... ".      Það væri gaman að sjá á prenti spurningarnar og svo svörin hjá Sturlu í þættinum í gær.  Ekki oft sem ég brosi yfir Kastljósþáttum. 

Marta! sömuleiðs 

Marinó Már Marinósson, 24.4.2008 kl. 12:48

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já - nú er ég búin að horfa á Kastljósþáttinn. Mér sýnist þetta nú fremur vera munurinn á því að vera vanur að koma fram opinberlega eða ekki. Horfðu á hendurnar á Herði Jóh. í viðtalinu við hann! Hann er mjög óstyrkur - hann kann bara betur að fara með það heldur en Sturla.

Báðir verða svo náttúrulega að reyna að réttlæta aðgerðir sinna manna........... 

Hrönn Sigurðardóttir, 24.4.2008 kl. 18:18

10 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Já, það er rétt, ég tók eftir þessu. 

Marinó Már Marinósson, 24.4.2008 kl. 21:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband