Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Duglegir krakkar og dósasöfnun
2.10.2007 | 23:13


Rjúpnaveiðar- of margir samfelldir veiðidagar!
24.9.2007 | 00:18
Jæja nú fer að líða að rjúpnaveiðum. Margir farnir að skipuleggja veiðidaganna. Ótrúlegt hvað margir eru skipulagðir þegar kemur að veiði eða íþróttum.
Gott að vita til þess að maður getur tekið sér frí frá fimmtudegi til sunnudags og stundað rjúpnaveiðina samfellt þessa fjóra daga í einu. En þvi miður þá verður það til þess að atvinnuveiðimenn geta stundað áfram sína veiðihörku þar sem fjórir dagar í einu gefa mun betri árangur á veiði en t.d. tveir dagar.
Hví ákvað ráðherra að hafa svona marga veiðidaga samfellt, úr því að verið er reyna að stýra veiðinni og vernda stofninn?
Hef grun um að hagsmunasamtök hér á höfuðborgarsvæðinu hafi haft áhrif á ákvörðunartöku ráðherra.
Ég held að það hefði verið mun betra að hafa sóknardaganna fleiri og hafa þá tvo og tvo.
Dæmi: Veiði á laugardögum og sunnudögum. Þriðjudögum og Miðvikudögum.
Með því að hafa tvo og tvo daga í veiði þá hefði fengist betri árangur með friðun á rjúpunni og atvinnuveiðimennska heyrt sögunni til.
Meiri sátt um friðun, samhliða því að veiða í jólamatinn fyrir okkur hin sem fara til fjalla ánægjunar vegna en ekki til að selja bráðina.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 00:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Tvíblöðungur og múrbrot.
27.8.2007 | 23:51
Múrvinna og ryk í dag. Jæja ég hélt áfram að hamast í nýja eldhúsinu hjá bro... eftir vinnu. Nú var sko lamið og barið. Það var ekki þurr þráður á mér eftir þetta puð.
Leigðum okkur tvíblöðung (sög með tveimur blöðum) og ég óð upp veggina með sögina og bjó til djúpa skurði fyrir raflagnir. Rykið maður minn. Ég var svartur í framan. Þurfti að fá lánaðan bol til skiptana áður en ég hélt heim í kvöld. Auðvitað þurfti að hann endilega að lána mér Liverpool bol og sá ástæðu til að mynda mig í honum hehe.
Fór í sund með Einari G í kvöld. Voða gott að að skella sér í pottinn og gufu eftir svona ryk og átök. sundið. Aldrei þessu vant þá hitti ég fullt af fólki í lauginni sem ég þekkti.
En mikið er nú gott að hamast svona af og til.
Vinir og fjölskylda | Breytt 28.8.2007 kl. 00:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Helgin á enda
26.8.2007 | 23:01
Jæja þá er helgin að klárast. Búin að hjálpa litla bróður að breyta húsinu þeirra og ætla að halda því áfram í vikunni. Ótrúlegt hvað það er mikið sem þarf að gera þegar verið er að færa til eitt stykki eldhús á milli herbergja og hvað maður kann mikið hehe, eða þannig.
Endaði svo kvöldið með krökkunum í ísbúðarferð.
Með báðar hendur á stýri
25.8.2007 | 00:27
Voðalega var nú gaman á leiðinni í vinnuna í morgun (föstudag). Eins og sum ykkar kannski vitið þá var Nýbýlavegurinn lokaður fyrir framan Toyota umboðið vegna færslu á háspennustreng.
Ég var heldur betur búin að hugsa mér í gær að fara hinn hringinn í vinnunna í morgun þ.e. Nýbýlaveginn til austurs og Smiðjuveginn til að losna við þetta vesen. En viti menn. Heldur var ég utan við mig þegar ég kom uppá Nýbýlaveginn og þó með báðar hendur á stýri. Hef greinilega gleymt að taka sjálfstýringuna af áður en ég lagði af stað.
því ég ók eins og venjulega vestur Nýbýlaveginn. Allt í einu blöstu við mér fullt af vegamerkingum og ég skildi ekki neitt í neinu. Hugsaði rétt snöggvast: "Geta þessir andskotar ekki auglýst þetta betur".
En þá mundi ég auðvitað að ég var búin að lesa um þetta, heyra þetta í fréttum og ég veit ekki hvað.
Því varð ég að gjöra svo vel og þræða mig eftir krókastígum inná Hafnarfjarðarveginn til að komast í vinnunna. Hver var að tala um að Kópavogurinn væri rólegur bær?
Var fastur í umferðaþunga í 15 mínútur í nágrenni við Hamraborg. En það voru allir voða afslappaðir eins og Kópavogsbúum sæmir.
Segjum bara að ég hafi verið með hugann við aksturinn.
Þessi dagur en að lokum góður
22.8.2007 | 00:35
Í dag kvöddum við í vinnunni þær Lindu Ósk, Herdísi og Jóhönnu svæðisfulltrúa á Vesturlandi. Þetta var frekar skrítinn dagur. Ég var búin að vinna með þeim Lindu og Herdísi frá því að ég byrjaði hjá RKÍ í árslok 1997. Okkar vinnustaður hjá Rk er oft eins og ein fjölskylda og örugglega öðruvísi en á öðrum vinnustöðum. En svona eru sumir dagar og það er ekki alltaf jólin.
Linda Ósk fer ekki langt í burtu, sem betur fer, svo við fáum að njóta hennar krafta miklu lengur. Kannski fer maður bara að venja komu sínar í morgunkaffi í Hamraborg á leið í vinnu. Svona til að taka púlsinn á deildarstarfi Kópavogsdeildar. Herdís lofaði að sækja um starf aftur síðar sem sendifulltrúi. Það er eins gott að hún standi við það.
En hvað um það. Eftir vinnu fór ég í bókabúð að kaupa skóladót handa krökkunum. Skólinn er að byrja á morgun. Það var brjálað að gera og það virtist vera að allir væru seinir fyrir eins og ég. Náði að eyða 12 þúsund krónum í bækur, möppur, liti, skriffæri og fleira. Sjá fólk, það var eins og einhver væri týndur undir bókastöflunum. Allir tættu og boruðu sig niður á neðstu bók. Af hverju er ekki hægt að fá tilbúinn innkaupapakka fyrir hvern bekk?
En þetta er ekki allt búið. Skólatöskurnar eru eftir. Ég ætla a bíða eftir krökkunum til að leyfa þeim velja töskur en þau koma á morgun úr sumarbústað með mömmu sinni. Vonandi finnum við töskur sem henta. Það væri nú gaman að hafa þær með innbyggðum tékklista fyrir hvern dag og ekki væri verra að hafa þær með einhverju gönguhvetjandi á brekkuna.
hehe Ég er viss um að strákurinn vill hafa festingu á töskunni fyrir hjólabrettið sitt. Hann var að reyna að sannfæra mig um að það væru til flottar skólatöskur í hjólabrettabúð. Hjólabrettabúð
Hvað verður það á næsta ári? Fjórhjól
Jæja þetta mun allt ganga upp eins og venjulega.
Skellti mér íí sund og svamlaði 15 metra og lá smá tíma í pottinum.
Endaði daginn hjá mágkonu minni og elsta bróður í frábærri kjötsúpuveislu . "Íslensk kjötsúpa, það langbesta sem ég fæ".
.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 00:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fallegt kvöld
19.8.2007 | 22:50
Kvöldið í kvöld var yndislegt. Fór í sund, synti smá en var fljótur að koma mér í heitapottinn og gufuna. Fékk mér smá göngutúr í kvöld í dalnum. Frábært veður. Síðan var hitað gott te og horft á Tíbet myndina í tv.
Skrif í skjóli veggjar og skokk
19.8.2007 | 17:35
Geri smá pásu á bloggið og læsi í smá tíma enda lélegur penni. Opið fyrir þá sem hafa áhuga.
Ég fór í bæinn eins og flest allir höfuðborgarbúar og landsbyggðafólk sem sá sér fært að skreppa í bæinn. Ég veit um nokkra sem komu langt að og smelltu sér í hlaupið. Þetta eru jú bara hetjur. Ég var svo slappur að ég nennti ekki einu sinni í 3ja km hlaupið. Vinnufélagar mínir hlupu fyrir Rauða krossinn. Meira en ég get sagt. Hér með stefni ég að því að hlaupa minnst 3 km á næsta ári. Eins og einhver sagði: :) Það er nú eitt ár þangað til. 365 dagar.
Það var mjög gaman í miðbænum í gær, allt svo afslappað og skemmtilegt. Veðrið hjálpar alltaf til.
Litli bróðir og co. buðu mér í kvöldmat (stórveisla) og eftir það var rölt niður í fjöru til að sjá áramótaljósin eða þannig. Sem sagt flottur dagur.
Í dag (sunnudagur) rölti ég úr Kjarrhólmanum niður á Hrísateig til að sækja farskjóann minn. Ma fékk sér smá gos í gærkvöldi. 65 mínútna ganga. Svo verður maður að nota nýju gönguskóna
Assgoti góðir.
Vinir og fjölskylda | Breytt 13.11.2007 kl. 10:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hlé
27.7.2007 | 10:51


Ný tækifæri á lóninu við Kárahnjúka?
23.7.2007 | 10:11
Ég skellti mér um daginn í smá ferð inn að Kárahnjúkum og skoðaði mannvirkin þar og hið nýja lón sem þar er að myndast. Þegar ég sá þetta stóra stöðuvatn þá varð mér hugsað til frænda míns Hrafns á Hallormsstað.
Í bókinni "Hrafn á Hallormsstað og lífið í krinum hann" eftir Ármann Halldórsson talar Hrafn eða Krummi eins og hann var alltaf kallaður af vinum, um LSD og ferðamannaiðnað á virkjunarsvæðinu.
LSD Lang Stærsti Draumurinn var það oft kallað þegar verið var að ræða um stórvirkjun í Fljótsdal árið 1970 en þá stóð til að virkja Eyjabakka með því að gera stíflu þvert yfir Norðurdal milli Eyjabakka utan til og Snæfellsness en á Eyjabökkum er einstakt gróðurlendi. Sem betur fer var fallið frá þeirri hugmynd. Held að tæknin (tæknileysið) hafi komið í veg fyrir þessa hugmynd. Ef af hefði orðið þá hefði myndast stórt stöðuvatn álíka stórt og Þingvallavatn sem hefði náð inn að Eyjabakkajökli. Eyjabakkar eru að mínu mati mun mikilvægari fyrir bæði gæs og hreindýr en þar sem Kárahnjúkalónið er í dag.
Krummi eins og Hrafn var alltaf kallaður sá fyrir sér mikla möguleika í ferðamannageiranum þarna með tilkomu stöðuvatnsins (Eyjabakkalón).
Hann sá fyrir sér "......skýjaborgir um atvinnuveg þarna innfrá að mannvirkinu loknu, þ.e. ferðamannaþjónustu á heimsmælikvarða". Hann sá fyrir sér sundlaug við Hafursfell. Hann vildi sjá ferjuskip á Eyjabakkalóni sem siglir inn að jökli að sumarlagi svo eitthvað sé nefnt. Hrafn var mikill náttúruunnandi og var öllum stundum inná heiðum Norðan jökuls.
Þegar ég kom að nýja stöðuvatninu á dögunum, norðan við Kárahnjúka þá sá ég á stundinni að þarna var komið tækifærið sem Krummi var að tala um.
Það er ekkert svart og hvítt í náttúruvernd. Ég hef stutt þessa virkjun og tel hana mikilvæga fyrir Austfirðinga sem og aðra landsmenn. Það á að notfæra sér þessa virkjun og vegi í tengslum við ferðamannaiðnaðinn. En auðvitað hefur miklu verið fórnað og ég veit að margir eru sárir út í þessar framkvæmdir en ég tel réttlætanlegt að nýta öll tækifæri sem eru til staðar og þetta er ein leið til þess.
Á nýja lóninu innan við Kárahnjúka hefur myndast ný eyja. Sjá myndir
Legg til að nýja lónið verði látið heita í höfuðið á Hrafni
Nú er bara að sjá hvort ekki verði keypt ferja á lónið og byggt svona eitt stykki hótel?
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 10:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)