Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Fimm ára reglan röng
25.9.2008 | 13:26
![]() |
Jóhann er toppmaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Er þetta ekki eftir bókinni?
18.9.2008 | 16:44
"Kjararáð ákvað í lok ágúst að hækka laun forseta Íslands, alþingismanna, ráðherra, hæstaréttardómara og héraðsdómara um 20.300 kr."
Nú finnst mér að þetta ætti að snúast við. Það ætti að ákveða þessi laun fyrst og svo ætti að taka mið af þeim í samningaviðræðum launþega. Þá yrði alla veganna Ingibjörg Sólrún ánægð fyrir hönd kvenna.
![]() |
Laun æðstu embættismanna hækkuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1-2
11.9.2008 | 00:05
.................................................................
![]() |
George Burley: Lögðum hart að okkur að landa sigri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt 13.9.2008 kl. 17:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Slöpp frétt
9.9.2008 | 16:19
Ég horfði á myndbandið sem fylgdi fréttinni þar sem utanvegaakstur mótorhjóla var gagnrýndur. Ég tek undir það að utanvegaakstur á alls ekki rétt á sér.
En hvar var verið að aka utanvegar í þessu myndbandi? Þetta voru allt slóðir sem búið var að bera sand ofan í eða greinilega fjölfarnir vegir af bílum eins og t.d. Fjallabak.
Það á að sýna réttar myndir ef á að nota sem áróður í svona frétt, annars virkar þetta sem neikvæð umræða gagnvart fólki sem vill ferðast á hjólum um landið án þess, að skemma það.
![]() |
Fordæma akstur utan vega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Verður ekki vísað úr landi að svo stöddu
9.9.2008 | 13:27
Bjarni Harðar alþingismaður segir á vef sínum að hann hafi fengið staðfest að Filippseyingurinn Mark Cumara fái að vera hér heima á meðan verið sé að vinna í hans málum en til stóð að senda hann úr landi þar sem dvalarleyfi hans var útrunnið. Samt er ekki öruggt að maðurinn fái landvistarleyfi þó svo að þetta sé í rétta átt gangvart honum.
Annað mál er þegar menn eru farnir að ráðast á lögregluna og nota vopn eins og hefur verið sagt frá í fréttum að undanförnu. Það á að senda svoleiðis menn beint heim.
![]() |
Þarf ekki að fara úr landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Byggjum upp kvennafótboltann með stæl
9.9.2008 | 10:44
Valskonur blómstra þessa daganna. Það liggur við að hver einasti leikmaður skori í hverjum leik þarna úti.
Nú eigum við að feta í fótspor Svía og Norðmanna og setja mikla peninga í uppbyggingarstarf í kvennaboltanum. Þar eigum við mikla möguleika. Ég er sannfærður um að landslið kvenna mun komast á flest stórmót í framtíðinni ef rétt er á haldið utan um þetta og er nokkuð viss um við munum þá fljúga inn á HM í framtíðinni. Margrét Lára er nú þegar í heimsklassa svo og nokkrar aðrar stelpur. Áfram stelpur.
![]() |
Lauflétt hjá Val sem fer í milliriðil |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bjóðum flóttafólkið velkomið
9.9.2008 | 10:15
Ég segi: Hjartanlega velkomin til Íslands. Það var að sjá að Palestínuflóttafólkið væri spennt og ánægt við komuna til landsins í gærkvöldi, eftir 26 tíma ferðalag frá Al Waleed eyðimerkurbúðunum sem eru staðsett á landamærum Iraks og Sýrlands en þar dvaldi fólkið við mjög erfiðar aðstæður, bæði í hita og við frostmark á nóttunni sem og að forðast snáka og önnur hættuleg skorkvikindi.
Ég er ekki í nokkrum vafa um að íbúar Akranes munu taka vel á móti fólkinu. Enda hefur flóttafólkið þurft að þjást í mjög langan tíma.
Ég held að það geti engin ímyndað sér hvað móðir hugsar, sem er skyndilega komin á framandi slóðir með ung börn sín, enda vön óörygginu sem fylgt hefur skálmöldinni sem ríkt víða í Miðausturlöndum undanfarin ár. Vona að þau venjist fljótt íslenskum aðstæðum og börnunum verði vel tekið.
Stuðningsfjölskyldurnar á Akranesi sem og aðrir sem komið hafa að undirbúningnum, hafa lagt fram ómælda vinnu svo þetta fólk nái að aðlagast að íslensku þjóðfélagi sem fyrst.
![]() |
Flóttafólkið brosti við heimkomuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Frábært myndband
6.9.2008 | 22:30
Varð að setja þetta hér inn en Herdís vinkona mín sendi mér þetta frábæra myndband.
Sendur úr landi eftir sex ár
6.9.2008 | 10:35
Ég er ekki alveg að fatta þetta en Mark Cumara, 23 ára Þorlákshafnarbúi, hefur verið úrskurðaður af landi brott um miðjan september vegna þess að hann hefur ekki sótt um landvistarleyfi. Móðir hans og uppeldisfaðir eru bæði íslenskir ríkisborgarar og hafa búið á Íslandi síðasta áratug. Systir hans, amma hans og afi á Íslandi eru líka íslenskir ríkisborgarar. Sjálfur hefur hann búið í Þorlákshöfn hjá foreldrum sínum í fimm ár.
Hann kemur hingað til lands þegar hann var 17 ára en foreldrar hans hafa búið hér í 10 ár og eru íslenskir ríkisborgarar. Ennfremur eru afi og amma líka íslenskir ríkisborgarar. Hann eða foreldrar hans hafa greinilega ekki gætt sín á að sækja um tilskilin leyfi og nú á að vísa honum úr landi. Sjálfsagt bera foreldrar ábyrgð á því að börn hafi dvalarleyfi þar til þau eru lögráða og eftir það beri þau ábyrgðina sjálf en þarna er orðinn svo langur tími liðinn frá því að hann kom til landsins. Sjálfsagt er þetta athugunarleysi eða trassaskapur í fjölskyldunni. Það hlýtur að vera hægt að leysa þetta mál með smá vilja? Þetta er nú bara mín skoðun.
![]() |
Kom 17 ára – sendur úr landi 23 ára |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Varð að blogga um þetta
4.9.2008 | 12:28
Þetta er með því betra sem ég hef lesið lengi. Oft hefur verið talað um að það geti verið betra að vera kvenmaður þegar kemur að bílum; hvort sem það er að heimsækja bílaverkstæði, skipta um dekk eða fara með bílinn í skoðun.
Þarna virtist virka að líkja eftir karlmannsrödd til að lokka viðgerðarmanninn í heimsókn en Carol þessi Sinclair var búin að hringja 20 sinnum eftir tölvuviðgerðarmanni án árangurs með sinni eigin rödd. Ég ætla ekkert að réttlæta eftirmálin hjá henni þar sem hún hélt aumingja manninum í gíslingu þar til að hann kláraði að koma nettengingunni í lag. Jæja, nú er ég hættur.
![]() |
Hélt tölvuviðgerðarmanni í gíslingu til að geta tengst netinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)