Sendur úr landi eftir sex ár

Ég er ekki alveg að fatta þetta en Mark Cumara, 23 ára Þorlákshafnarbúi, hefur verið úrskurðaður af landi brott um miðjan september vegna þess að hann hefur ekki sótt um landvistarleyfi. Móðir hans og uppeldisfaðir eru bæði íslenskir ríkisborgarar og hafa búið á Íslandi síðasta áratug. Systir hans, amma hans og afi á Íslandi eru líka íslenskir ríkisborgarar. Sjálfur hefur hann búið í Þorlákshöfn hjá foreldrum sínum í fimm ár.  

Hann kemur hingað til lands þegar hann var 17 ára en foreldrar hans hafa búið hér í 10 ár og eru íslenskir ríkisborgarar.  Ennfremur eru afi og amma líka íslenskir ríkisborgarar. Hann eða foreldrar hans hafa greinilega ekki gætt sín á að sækja um tilskilin leyfi og nú á að vísa honum úr landi. Sjálfsagt bera foreldrar ábyrgð á því að börn hafi dvalarleyfi þar til þau eru lögráða og eftir það beri þau ábyrgðina sjálf en þarna er orðinn svo langur tími liðinn frá því að hann kom til landsins. Sjálfsagt er þetta athugunarleysi eða trassaskapur í fjölskyldunni.   Það hlýtur að vera hægt að leysa þetta mál með smá vilja?    Þetta er nú bara mín skoðun.   


mbl.is Kom 17 ára – sendur úr landi 23 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: arnar valgeirsson

jamm, marínó. samkvæmt þessari frétt er þetta nú dálítið hektískt, svo ekki sé meira sagt. auðvitað á fólk að passa upp á tilkynningar og annað slíkt, umsóknir og svoleiðis, þegar staðan er þannig.

en þar sem famílían er þarna öll í sama húsnæði og hjá sama vinnuveitanda, þá lítur þetta ansi grimmilega út. kommon, er ekki hægt að gefa gula spjaldið í svona málum ha.

ef fólk fengi svo það rauða væri það þeirra eigin trassaskapur.

ekki sambærilegt en mér dettur í hug umferðarsekt upp á 30 þúsundkalla fyrir að vera alveg óvart, já alveg óvart og gleyma sér augnablik, á 106. maður heldur sig á níutíu lengi lengi eftir það sko. kom bara svona upp í hugann sko!

arnar valgeirsson, 6.9.2008 kl. 20:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband