Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Maraþonnám og gæsla

Krakkarnir í 9 bekk í Hjallaskóla stóðu fyrir námsmaraþoni í gær og í nótt og ég stóð vaktina eins og lög gera ráð fyrir.    Eins og ég hef komið að áður þá eru þau að safna fyrir skólaferð til Danmerkur næsta vor.  Þau byrjuðu í gærmorgun að læra og hættu ekki fyrr en í morgun.

Það gekk nú á ýmsu á þessum sólarhring eins og gengur þegar svona margir krakkar koma saman.   Smile  Það markverðasta var að það kviknaði í eldavélahellu í nótt þegar krakkarnir voru að búa til sultu í heimilisfræðiverkefninu svo brunakerfið fór í gang.  En sem betur fór þá voru starfsmenn félagsmiðstöðvarinnar fljót á staðinn með slökkvitæki og komu í veg fyrir að ekki fór verr.  Police   Á meðan voru allir reknir út á hlað.  Sumir ansi léttklæddir eftir því sem mér skilst.   Frown   En þetta stoppaði sem betur fer ekki maraþonnámið þeirra.

Ég tek það fram að ég var löngu búin með mína vakt og farin heim.   

En hvað um það.  Það voru alsæl og  en þreyttir krakkar sem skriðu heim til sín í morgunsárið og skriðu beint uppí rúm til að ná upp fyrri orku.   Happy

 Starfsmenn skólans eiga heiður skilið fyrir stuðninginn sem og þeir foreldrar sem komu að þessu og svo auðvitað krakkarnir sjálfir.


Forvarnadagur

Í dag, miðvikudaginn 21. nóvember er Forvarnardagur í öllum grunnskólum landsins. Fræðsla og kynnt verða nokkur heillaráð sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum.

Hvet alla foreldra að verja sem mestum tíma með börnum sínum.  Hvert ár með þeim skiptir máli.    

 http://www.forvarnardagur.is


Hetjur

Engin spurning. Þessir menn hjá Landhelgisgæslunni voru og eru mjög hugaðir. Oft sýnt ótrúlega færni þegar á reynir.  Held að engin hafi gert sér grein fyrir því hversu erfiðar aðstæður voru þarna þessa nótt þegar Wilson Muuga strandaði.  
mbl.is Þyrlan var hætt komin þegar Wilson Muuga strandaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fingrabretti kennslumyndband

Hérna er smá myndband sem Einar Guðjón bjó til í gær. Kennsla í "fingerskate"   Smile

 


Þessir kettir

Rakst á þetta.  Verðið að skoða. Grin

 

http://www.metacafe.com/watch/836340/short_animal_compilation/

 


Hlaupahjól

Bara að prófa og sjá.    Einar Guðjón á hlaupahjóli í Fossvogsdal fyrir nokkrum dögum.


Mikið svifryk á höfðborgarsvæðinu í dag

Ég sé að á vef mbl.is að þar kemur fram að það er mikið svifryk í loftinu þessa stundina.  Mælingin segir 124.2µg/m³.  Mér skilst að ef mælist hærra en 50 µg/m3 þá sé það slæmt.  Frown  Það má víst fara 23x yfir þau mörk á ári, China has a huge problem with pollutionmælt í sólarhringjum. 

 

 

Krakkar sem eru að leika sér úti ættu að vera með andlitsgrímur.    Ég er ekkert viss um að nagladekkjum sé eingöngu um að kenna núna.  Þurrar götur, snjóleysi, kuldi, logn, mikill hraði bíla og pústurrör sem vísa niður, blása upp ryki, eru örugglega líka orsakavaldar?     

 Ryksuga göturnar strax.     Smile 

 


Er þetta ekki dæmigert!

Ætli þessi danski blaðamaður viti hvar Ísland er á landakortinu?  Írland er að vísu líka eyja.  Dæmigert. Pouty  Níðast á öðrum af því að þeir voru sjálfir ekki nógu góðir í leiknum gegn Norður- Írlandi.
mbl.is Krefjast hefnda gegn Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott hjá krökkunum

Fór að sjá sýninguna hjá krökkunum en stelpan mín var líka að sýna föt þarna fyrir nokkrar fataverslanir.  Flott hjá þeim.  Mikill metnaður í gangi.   Líka mikill sigur hjá stelpunni en stressið var mikið fyrir. Smile      
mbl.is Keppt í fatahönnun, hárgreiðslu og förðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurskinsmerkin

Hvar eru glitmerkin? Endurskinsmerkin!    

Ég hef undanfarið hamrað á krökkunum mínum að nota endurskinsmerkin.   Þetta hefst allt með nöldrinu.   Smile

Því miður er alltof mikið um að krakkar noti ekki merkin. Woundering  Ég hef ekið fram á krakka sem sjást mjög illa.  Það bætir ekki úr skák að það virðist vera í tísku að klæðast dökkum fötum. Ninja   

Ef krakki er án endurskins þá sér ökumaður hann ekki fyrr en hann er komin í ca.  25 metra fjarlægð. (Kannski sést hann alltof seint) 

En ef krakkinn notar endurskinsmerki þá sést hann mun fyrr eða í ca. 125 metra fjarlægð.  Svo munar miklu að hafa merkið neðarlega t.d. á ökklanum.  

En því miður eru þessi merki alltof dýr. Ég er á þeirri skoðun að þau eigi að vera ókeypis fyrir alla.  Tryggingafélög ættu að gefa öllum sínum viðskiptavinum merki.       ´

Gerum merkin kúl.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband