Forvarnadagur

Í dag, miðvikudaginn 21. nóvember er Forvarnardagur í öllum grunnskólum landsins. Fræðsla og kynnt verða nokkur heillaráð sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum.

Hvet alla foreldra að verja sem mestum tíma með börnum sínum.  Hvert ár með þeim skiptir máli.    

 http://www.forvarnardagur.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ekki nóg að senda krakkana eða okkur sjálf á fundi og fyrirlestar um forvarnir, samvera við þessa gullmola okkar er það sem skiptir máli og um að gera að skipta sér nógu mikið af því sem þau eru að gera  hver stund telur........og kemur ekki aftur

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 11:30

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Samvera samvera samvera.... ég elska það hvað krakkarnir mínir eru duglegir að vera heima með mömmu og pabba á kvöldin. Svo er það besta við það að eitt árið voru keypt sjónvörp í herbergin þeirra. Ásdís fór með sitt í bílskúrinn og Sturla notar sitt fyrir leikjatölvu endrum og sinnum.... og ef horft er á sjónvarp þá sitjum við í kös í sófanum. Frumburðurinn á skólaballi núna og svo eru menntaskólaböllin næst. Mikilvægt að styrkja sjálfsmyndina til að þau nái að standa á sínu þegar út í menntaskólalífið kemur. 

Herdís Sigurjónsdóttir, 21.11.2007 kl. 22:50

3 Smámynd: arnar valgeirsson

ekki bara hvert ár marinó, hver dagur og hver mínúta í raun því....

nýlega var gerð rannsókn í bretlandi á því hvað foreldrar og börn deildu miklum tíma á sólarhring. og niðurstaðan var skal ég segja þér;

heilar sautján mínútur. jamm, sautján.

þó mínir komi bara aðra hvora helgi, svona vanalega fyrir utan sumarið og svona, þá vil ég nú gera betur en það. svei mér þá, barasta.

arnar valgeirsson, 21.11.2007 kl. 23:15

4 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Seytján mínútur???     Ekki 2x45 mín plús til og frá vellinum?

Marinó Már Marinósson, 21.11.2007 kl. 23:34

5 Smámynd: Sturla Snorrason

Hvað skyldi okkar fáránlega borgarskipulag og umferðarteppur stela mörgum klukkutímum frá börnunum okkar. 2000 foreldrar fastir í umferðarteppu 1/2. tíma á dag gerir 1000 klukkutímar , eða 230 ferðir á ári 230.000 tímar.

Sturla Snorrason, 22.11.2007 kl. 15:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband