Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Þjóðmál og mínar vangaveltur
15.11.2008 | 16:54
Ég er einn af þeim sem hugsa mikið um þjóðmálin í dag. Skrítið. Ekki það að ég hafi mikið vit á þeim en ég hef skoðun eins og allir aðrir.
Ég vil ekki að ríkið taki stórt lán. Ég er hræddur við alþjóðagjaldeyrissjóðinn og þau öfl sem þar eru á bak við. Ég vil að þjóðin reyni að skapa eins mikil verðmæti og hægt er reyni að snúa vöruskiptum við. Seljum meira en við kaupum.
Ég vil að við skoðum inngöngu í ESB gaumgæfilega áður en sú ákvörðun verður ofan á. Hverju munum við ráða með eitt atkvæði af tuttugu og átta? bretar munu greinilega þjösnast á okkur eins og þeir geta. Dæmin hafa sýnt það. Ég vil setja íslensku krónuna á flot svo við fáum raunhæfa krónu í takt við veruleikann þó svo að það verði sárt en það mun jafna sig og við munum ná okkur upp úr þessu.
Ríkið á að draga úr framkvæmdum nema þar sem mannþörf er svo ekki verði meira atvinnuleysi.
Svo vil ég kosningar en ekki fyrr en næsta haust því annars fáum við bara sama fólkið í stjórn. Flokkar munu ekki ná að skipta út ef kosið yrði t.d. í vor. Það á að skipta út forustufólki í Seðlabankanum, á alþingi og Fjármálaeftirlitinu því að peningastefnan hér á landi hafi brugðist hrapalega eins og allir vita.
Við getum komist út úr þessu ástandi en það mun kosta sitt. Kaupum íslenskt ef við getum. Við getum þetta.
Áfram Ísland.
Var þetta kannski bara rangur misskilningur?
14.11.2008 | 13:42
Var þetta mál ekkert mál eftir allt saman? Það var alltaf sagt að eignir í bretlandi nægðu fyrir skuldum en það virtist enginn ráðamaður vilja halda því á lofti.
Á nú allt í einu að semja við umheiminn að undirlagi breta sem ætla sér að hafa sitt í gegn? Kannski var þetta rangur misskilningur
Hvað með skaðann sem bretar hafa valdið okkur? Ætli Geir og Ingibjörg þori, úr þessu, að fara í mál við þá? Nei, ég held ekki.
Enda finnst mér tónninn vera: breskar þotur skulu fá að nota Ísland sem æfingasvæði í desember hvað sem hver segir enda má ekki styggja breta.
já já það er mikill hæðnistónn í þessu hjá mér. Það má. Sjálfsagt leysist þessi deila en fyrir mestu að skuldirnar lendi ekki á okkur.
![]() |
Milliríkjadeilunni verður að ljúka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tuttugu ný sérfræðistörf við álverið í Reyðarfirði
13.11.2008 | 17:06
![]() |
Allt að tuttugu ný sérfræðistörf fyrir austan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Það veit ekki á gott
13.11.2008 | 16:46
Það er greinilegt að Geir ætlar ekki að standa við orð sín. Nú ætlar hann greinilega að semja við breta og Hollendinga. bretar eru greinilega búnir að knésetja Geir og Ingibjörgu S með baktjaldavinnu og greinilegt að Norðurlandaþjóðirnar ætla að pína okkur að semja um þetta Icesave mál við breta. Það á að láta málið fyrir dómstóla því ég er sammála sumum að ábyrgðin sé breta þar sem þeir settu hryðjuverkalög á LI-bankann.
Það er verst að þessir sömu flokkar sem nú eru við völd græða á hugsanlegum kosningum í vor því ég held að það sé því miður of snemmt að kjósa strax þó svo ég vildi glaður skipta út þessum ráðherrum fyrir eitthvað allt annað. Ég er reiður.
![]() |
Enginn góður kostur í stöðunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Framlenging á leik
12.11.2008 | 22:21
"Það stendur yfir framlenging og staðan jöfn" sagði þulur RÚV sagði í kvöld.
Bíddu!! Stendur ekki yfir einhver leikur sem þá er væntanlega búið að framlengja? Nei ég bara segi svona.
Hjartastuðtæki og skjót viðbrögð björguðu mannslífi
10.11.2008 | 18:15
Þar sem ég þekki til viðkomandi atviks þá langar mig að blogga aðeins um þessi mál.
Það er mín skoðun að þessi svo kölluð hálfsjálfvirk hjartastuðtæki séu ein mesta bylting sem komið hafa fram á síðari árum í endurlífgun, fyrir utan fræðslu og menntun í skyndihjálp. Mér finnst að svona tæki eigi að vera í öllum lögreglubifreiðum á landinu sem og á opinberum stöðum þar sem allir hafa aðgang að þeim. Það er mjög auðvelt að læra á þau og því nauðsynlegt að hafa þau sem aðgengilegust fyrir alla.
Rauði kross Íslands hefur séð um skyndihjálparnámskeið undanfarin ár og hvet ég alla til að sækja þessi námskeið reglulega.
Innskot: Gísli Björnsson, Deildarstjóri sjúkraflutninga hjá SHA, greinir nákvæmar frá þessu hér í athugasemdir hér fyrir neðan þannig að fréttin sé rétt. Ég sem hélt að Skessuhorn hefði verið með nákvæma frásögn af þessu Endilega lesið athugasemd Gísla, þið sem hafið áhuga.
![]() |
Hjartastuðtæki og skjót viðbrögð björguðu mannslífi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt 11.11.2008 kl. 12:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Göngutúr
8.11.2008 | 20:14
Tryggvi Þór er snjall og vitur maður sem ætti að hlusta á
8.11.2008 | 15:32
Ég hef alltaf sperrt upp eyrun þegar Tryggvi Þór Herbertsson tjáir sig. Hví í ósköpunum hlustaði Geir H og co ekki á þennan mann? Tryggvi hefur alltaf verið skynsamur í öllu sem rætt hefur verið um og séð hlutina í víðara samengi og án eigin hagsmuna.
Ef það verður einhvern tíma sett á þjóðstjórn þá á þessi maður að sitja í þeirri stjórn. Engin spurning.
![]() |
Tryggvi Þór: Lítið samband |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dabbi á seðil!
5.11.2008 | 13:04
Þetta er brandari ársins. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú sérstætt peningafölsunarmál. Hvað var fólkið að hugsa sem tók á móti blaðinu?
Strákurinn minn (12 ára) á einn svona seðil og hann hengdi hann upp á vegg því honum fannst þetta svo flottur seðill og hann er hér enn. Ætli ég verði ekki að hringja í lögguna og skila inn fölsuðum seðli?
Það er allaveganna komin ný króna sem Evrópa gæti fallið fyrir.
![]() |
Notaði seðil með mynd af Davíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hættum þessu loftrýmiseftirliti með herþotum
4.11.2008 | 13:48
![]() |
Danir senda F-16 vélar til Ísland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |