Eftirlit með kosningum í vor
20.3.2009 | 18:58
Var að lesa gamla frétt á mbl.
Sendinefnd Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE, sem var hér á landi nýlega, mælir með því að stofnunin sendi eftirlitsmenn til að fylgjast með alþingiskosningunum, sem haldnar verða hér á landi eftir rúman mánuð.
Úff!!!! Við erum að verða eins og hvert annað "bananalýðveldi" enda varla von, þegar lögum er breytt rétt fyrir kosningar.ÖSE fylgist með kosningunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
100 skref á mínútu
19.3.2009 | 11:27
Ný rannsókn bandarískra vísindamanna sýnir fram á að ef fólk vill fá hóflega hreyfingu á hverjum degi þá skal það ganga rösklega í hálftíma. Lykillinn er taka 100 skref á mínútu. Vísindamennirnir fengu út töluna með því að mæla súrefnisþörf líkamans hjá um 100 manns, sem voru látin ganga á hlaupabretti.
Nú er bara að taka skrefateljarann með í gönguna og halda sér í formi og ekki múður sko.
Hálftími á dag kemur heilsunni í lag.
100 skref á mínútu sögð gera gæfumuninn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Farfuglar koma
17.3.2009 | 20:57
Nú eru farfuglarnir farnir að sjást við suðurströnd landsins.
Í vetur voru 40 álftir merktar í Bretlandi og er hægt að fylgjast með þeim hér.
Þegar eru nokkrar álftir komnar yfir hafið en ein þeirra lagði af stað um daginn en snéri við vegna veðurs en kláraði svo flugið stuttu síðar.
Einnig er gaman að fylgjast með komu annarra fugla inn á síðunni fuglar.is
Þau ættu frekar að hlusta á Tryggva Þór
17.3.2009 | 18:01
Forsætisráðherra segir tillögur Tryggva Þórs Herbertssonar til lausnar á vanda heimilanna arfavitlausar og sýna það að kosningayfirboðin séu komin á fullt. Fjármálaráðherra segist vera farin að skilja af hverju bankinn sem Tryggvi rak gekk ekki nógu vel.
Hvað er að þessu fólki? Eru þetta ekki bara tillögur hjá honum?
Hvað veit Steingrímur hvernig Tryggvi stjórnaði sínum banka? Mér finnst þau, því miður, vera komin niður á sama plan og þau ásökuðu Davíð O um á sínum tíma. Jaðrar við að þetta sé hrokafullt af þeim.
Mér finnst að þau ættu að skoða þessa hugmynd áður en þau afgreiða hana sem kosningaútspil og þar með vonlaust mál.
Húsráð Tryggva Þórs þykja vond | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kunnugleg nöfn!
16.3.2009 | 23:08
Eitthvað finnst mér ég kannast við þessi nöfn. Var ekki verið að kvarta yfir því, fyrir valdaskiptin, að bankaráð Seðlabankans væri of pólitíkst?
Ég segi bara: Sami grautur í sömu skál.
Nýtt bankaráð Seðlabankans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mæður vinna meira
16.3.2009 | 21:40
Mæður vinna 40% meira inni á heimilunum heldur en feður án þess að fá greitt fyrir... segir í fréttinni.
Þær eyða 74 klukkustundum í heimilisstörfin versus 53 klst. hjá feðrum.
Þar höfum við það.
Viðbót: Líklega er þetta líka tilkomið af því að konur geta klárað tvo hluti í einu eða jafnvel þrjá.
Mæður vinna 40% meira en feður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fiskinn á diskinn minn
9.3.2009 | 14:43
Það er náttúrulega alveg ljóst að það verður fiskur í matinn hjá mér næstu vikur. Bara til að ná í minnst 18 - 20 % snilld.
"Fiskinn minn, nammi nammi namm"
Táningar klárari af fiskáti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vorið nálgast með komu farfugla
8.3.2009 | 18:29
Viðhorfið
7.3.2009 | 14:50
Er alltaf að reyna að vera svo spekingslegur.
Sko! Ef þú heldur að þú getur gert þetta, þá er það rétt hjá þér. Þú getur. En ef þú heldur ekki, þá er það sennilega skynsamlegt af þér.
Ringo og Paul saman á sviði á ný
4.3.2009 | 18:05
Þeir Paul McCartney og Ringo Starr, ætla að koma saman fram á tónleikum í New York 4. apríl.
Samkvæmt fréttinni munu þeir Paul og Ringo taka saman að minnsta kosti eitt lag.
Það er nú varla hægt að spila minna en eitt lag. Kannski hálft?
Eftir því sem ég veit best, þá spiluðu þeir síðast saman á minningartónleikum um George Harrison þann 29. nóvember árið 2002. Sjá hér að neðan.
Ringo og Paul saman á sviði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)