Frábært Jóhanna
26.6.2007 | 14:59
![]() |
Teymi stofnuð til að vinna á biðlistum eftir greiningu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hvað er að mönnum?
26.6.2007 | 14:54
Þetta finnst mér ansi lélegt. Hvað er að mönnum?
![]() |
HK fánarnir skornir niður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hvað ef...
25.6.2007 | 15:21
![]() |
Elsta systkinið gáfaðast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Flott síða Stefán Jón Hafstein
25.6.2007 | 10:44
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sæhestur
21.6.2007 | 14:08
Þarna er kannski komin ein hugmynd í ferðabransann? Ef ekki verður hægt að sanna hvaðan hann kom þá ætti þessi hestur að fá vottun sem sæhestur.
En eins og einhver sagði forðum: Það var ekki hægt að þekkja hestinn fyrir sama mann, þegar ljóst var að hesturinn yrði lengi að jafna sig.
![]() |
Sæhestur" nam land í Straumfirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hjólabrettabraut í Fossvogsdal
21.6.2007 | 10:01
Framhaldsaga af hjólabrettabrautinni. Eins og ég sagði frá hér fyrir nokkrum dögum, þá skrifaði strákurinn minn bæjarstjóranum í Kópavogi bréf uppá sitt einsdæmi og bað um eitt stykki braut fyrir hjólabretti í hverfið þar sem við búum.
Jæja viti menn. Þegar ég, ásamt börnunum mínum vorum að koma heim í gærkvöld, þá tekur dóttir mín eftir því að það er komin þessi glæsilega braut rétt við Fossvogsskóla niðri í Fossvogsdalnum. Litli kappinn var snöggur í brettabúnaðinn og hlífar og var rokinn af stað niður í dal áður en ég vissi af.
Ég hugsaði: Helv... voru þeir snöggir hjá Kópavogsbæ að svara bón stráksa. "Sko, hvað sagði ég" En dóttir mín var nú fljót að átta sig á því að þessi braut væri alls ekki í Kópavogi heldur í Reykjavík. Jæja, hugsaði ég,
Björn Ingi og Vilhjálmur borgarstjóri hafa örugglega lesið bloggið mitt og brugðist skjótt við eða þannig.
Ég þykist vita að það tekur auðvitað sinn tíma fyrir bæjaryfirvöld að fara í gegnum umsóknir og samþykktarferli fyrir svona leiksvæði og Kópavogsbær þarf sinn tíma í það. En þeir gætu nú samt svarað stráknum að málið væri í skoðun.
En hvað um það. Nú röltir hann bara yfir í næsta bæjarfélag til að renna sér í brautinni. Flott að að skreppa yfir Dalinn til að renna sér þarna hjá Villa og co. Þessi braut (Rampur) er rosalega flott. Hugað að öllum öryggisatriðum.
Flott framtak.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Að vera á móti en samt sammála
19.6.2007 | 11:17
Það er hálf undarleg afstaða hjá Samfylkingunni að sitja hjá þegar Ragnar Bjarnason söngvar var útnefndur borgarlistamaður Reykjavíkur.
Ég spyr: Er núna allt í einu hægt að vera sammála öllu með því að sitja hjá?
Eða er hægt að vera á móti með því að sitja hjá?
Er hægt að vera alveg sama um allt með því að sitja hjá?
Gat Samfylkingin ekki bara samþykkt Ragnar sem borgarlistamann, þennan flotta listamann sem hefur staðist alla tísku tónlistar og síðan mótmælt vinnubrögðum meirihlutans? Frekar velja þeir að að reyna að túlka hjásetu sem samþykkt.
![]() |
Samfylking sat hjá við útnefningu borgarlistamanns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Til hamingju konur
19.6.2007 | 10:56
Í dag er kvennréttindadagurinn. Óska öllum konum til hamingju með daginn.
Það eru aðeins 92 ár síðan konur fengu kosningarétt og það voru aðeins konur sem voru orðnar 40 ára og eldri sem fengu kosningarétt en það var 19. júní árið 1915 sem danski konungurinn staðfesti kosningarrétt kvenna. Með því urðu íslenskar konur þær fyrstu í heimi til að fá almennan kosningarrétt og kjörgengi.
Því miður er enn langt í land hvað varðar jafnrétti kynja í heiminum í dag.
Áfram konur
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17. júní
17.6.2007 | 11:59
Gleðilega hátíð.
Fastur liður hjá Kópavogsbæ á 17. júní er að brassbönd Skólahljómsveitar Kópavogs ekur um bæinn á pallbíl og spilar fyrir bæjarbúa. Þetta er skemmtilegur siður og kemur öllum í gott skap. Mjög margir rjúka út að glugga eða út á hlað til að njóta tónlistarinnar. Reyndar fannst mér þeir keyra full hratt um hverfið þetta árið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Getur verið hættulegt að vera tillitssamur í umferðinni?
16.6.2007 | 13:23
Á brúnni við Bústaðaveg á móts við Kringlumýrarbraut eru alltof tíðir árekstrar. Þrátt fyrir að þarna séu mislæg gatnamót þyrfti að bæta við beygjuljósum til að fyrirbyggja þær hættur sem orsaka langflesta árekstra á þessum stað.
Þeir sem aka austur Bústaðaveginn og ætla að beygja til vinstri í áttina að Kringlunni þekkja þetta vandamál. Oft hef ég séð góðviljaða bílstjóra á vinstri akrein sem eru á leið til Kópavogs ætla að gefa þeim sem bíða, eftir að komast yfir vegin, tækifæri að skjótast þvert yfir Bústaðaveginn í áttina að Kringlunni. Þetta gerist oft á álagstímum.
Þá gleymist eða þá að menn athuga ekki að á hægri akrein koma bílar á fullri ferð á leiðinni vestur Bústaðaveginn í átt að miðborginni. Þeir lenda á þeim sem aka þvert yfir í veg fyrir þá, en sáu þá ekki koma vegna þess að bílarnir á vinstri akrein (þeir sem eru á leið í Kópavoginn) hindra sýn.
Með tiltölulega litlum tilkostnaði eða breytingum væri hægt að minnka verulega þessa hættu sem þarna skapast daglega, ekki síst á álagstímum. Tryggingafélögin mættu fjárfesta í umferðarljósum á þetta götuhorn til forvarnarstarfs.
Sjálfur íhuga ég stundum hvort ég eigi að velja aðra leið, þó ég þyrfti starfsins vegna að fara þarna um daglega. Sérstaklega á álagstímum.
Svo á það að vera sjálfsagður hlutur að gefa öðrum vegfarendum tækifæri að komast leiðar sinnar en þarna getur það hefnt sín.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)