Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008
Andlaus
30.8.2008 | 19:51
Indie tónlist
30.8.2008 | 19:48
Fyrir þá sem vilja hlusta á öðruvísi tónlist en hljómar í útvarpinu dags daglega.
Ég hlusta mikið á þessa svokölluðu Indie tónlist þessa daganna.
Ýtið á Listen now til að ræsa spilarann. Góða skemmtu.
Sarah McLachlan
29.8.2008 | 19:24
Tilvalið að setja inn fallegt lag á rigningardegi sem þessum, föstudaginn 29. águst.
Sarah McLachlan - Angel
Mínir menn
27.8.2008 | 17:56
Mikið var ég stoltur af mínum mönnum þegar flugvélarnar flugu yfir bæinn og svo þegar þeir gengu frá borði.
Rétt áður en þotan kom til Reykjavíkur var þessi myndarlegi regnbogi í Fossvogsdalnum, örugglega þeim til heiðurs. Til hamingju með daginn.
Landsliðið komið heim | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífð og tilveran
25.8.2008 | 21:59
Öll stöndum við einhverntíma frammi fyrir því í lífinu að líta til baka og skoða hvað maður hefur áorkað og hvað maður hefði viljað gera betur. Þetta á við mig eins og flesta aðra.
Lífsleiðin er eins og landslag. Það eru sléttar grundir og það eru lækir og hæðir og fjöll. Sumir hafa siglt lygnan sjó en aðrir ekki. Þessa stundina upplifi ég smá klifur sem vonandi tekur enda. En það er svo skrítið að þegar maður lendir í smá klöngri þá fer maður að hugsa um lífið á annan hátt. Var þetta ekki heimspekilegt hjá mér?
Silfur
24.8.2008 | 11:16
Fékk gæsahúð þegar ég horfði á mína menn taka við silfrinu enda ekki á hverjum degi að landinn fær pening á ólympíuleikunum. Frábært, frábært. Ég má alveg hafa rangt fyrir mér en ég var bara svo viss um að við myndum vinna leikinn en Frakkar eru bara hreinlega bestir og að sjálfsögðu óskum við þeim til hamingju með sigurinn. Hvað um það, hér á að fagna enda yndislegt að hafa náð öðru sæti á svona stóru móti. Að vísu þarf að fægja silfrið reglulega. Við erum bara næst bestir og það er sko ekkert annað. Smart. Til hamingju með frábæran árangur. Nú tölum við ekki um silfurmanninn heldur silfurmenninna.
Íslendingar taka við silfrinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Vonandi tekur þetta aldrei enda
24.8.2008 | 04:42
Flugeldasýning á sundunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt 25.8.2008 kl. 00:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hraustir kappar og gott framtak
23.8.2008 | 13:08
Mér finnst framtak slökkviliðsmannanna frábært en tuttugu manna sveit slökkviliðsmanna hljóp hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu nú í morgun og dró á eftir sér fólk í hjólastólum. Með þessu safna þeir áheitum fyrir Íþróttafélag fatlaðra og líknarsjóð slökkviliðsins. Það eru víða hetjur á ferðinni.
Slökkviliðsmenn drógu hjólastóla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Norge tok sitt første OL-gull i håndball
23.8.2008 | 12:52
Norsku stúlkurnar unnu gullið í útslitaleik gegn Rússum, 34:27. í yfirburðasigri handboltakeppni kvenna á ólympíuleikunum í Peking. Svaka flott hjá þeim enda langbestar í keppninni.
Svo munum við vinna gullið á morgun gegn Frökkum þannig að það verður flott að hafa tvö bestu liðin hér á svæðinu. Til hamingju Norge.
Norðmenn ólympíumeistarar í handbolta kvenna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tek til baka orðin Þorgerður
22.8.2008 | 13:51
Íslendingar í úrslitaleikinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 14:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)