Golfkennsla!

Jæja. Við feðgarnir skruppum í kvöld upp í Bása til að skjóta nokkrum boltum.  tjaaaa Það var reyndar prinsinn sem sá um að skjóta. Halo En ekki stóð á mér að gefa góð ráð. Cool Enda frægur fyrir slíkt, svo sumum finnst nóg um.  Devil hehe    Hvað?  Ég hélt að ég gæti nú sýnt honum ný trix sérstaklega eftir golfnámskeiðið sem ég fór á í síðustu viku.   Fékk bara föst skot frá honum. "pabbi heldur þú að þú kunnir allt þó svo að þú hafir fengið smá leiðsögn?  Prófaðu sjálfur"   Ég varð auðvitað að sýna honum eitt skot.  Það varð nú ekki glæsilegra en svo að blotinn rúllaði út fyrir öryggisnetið á pallinum. Blush Ég sá skítaglottið á hjónum sem höfðu fylgst með í laumi en þau voru að æfa sig á næsta bás.  Blush LoL Það var ekki mikið um leiðsögn hjá pabba eftir þetta.  En við skemmtum okkur vel. Smile Svo var veðrið mjög gott.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Nú kom vel á vondan....,,,, vera rólegur í ráðleggingum.... ég er alltaf að segja þér þetta...... taktu nú ráðleggingu og hættu að ráðleggja......

Fanney Björg Karlsdóttir, 6.9.2007 kl. 23:47

2 Smámynd: Marinó Már Marinósson

hehe   yes

Marinó Már Marinósson, 7.9.2007 kl. 00:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband