Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Léleg rök hjá vinum Bjarkar
22.7.2008 | 17:55

![]() |
Bubbi liggur undir ámælum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Konur v Karlar
21.7.2008 | 11:08
Mátti til með að setja inn þessa teiknimynd sem fjallar á spaugilegan hátt hvernig karlar og konur framkvæma hlutina á sinn hátt. Bara brosa og hafa gaman af.
Julian Lennon
21.7.2008 | 00:03
Fyrir grjótharða Bítla- aðdáendur. Var að skoða gömul myndbönd á YouTube og rakst á þetta viðtal við Julian Lennon. Þetta er mjög einlægt viðtal og kemur margt í ljós sem ekki hefur verið mikið talað um, svo sem skapofsa í pabba hans. Þeir sem hafa áhuga að lesa aðra sýn á sögu Bítlanna, þá bendi ég á bókina "John" eftir Cynthiu Lennon, fyrri konu Johns og móðir Julians, en sú bók styður margt sem kemur fram í þessu myndbandi.
Æfingasvæði fyrir bílstjóra
20.7.2008 | 15:04
Því miður þá liggur við að maður lesi á hverjum degi fréttir af slysum í umferðinni. Eitt sem er áberandi yfir sumartímann eru óhöppin sem verða við akstur á malarvegi. Þegar fólk flykkist í sumarfrí velur það sér oft leiðir sem ekki eru malbikaðir vegir. Að aka á þannig vegum er ekki það sama og á bundnu slitlagi. Vegir eru oft mjóir og stundum hefur skolast undan malbikinu í vegkantinum. Víða í USA eru vörubílstjórar sem sérhæfa sig í akstri með stóra tengivagna á malarvegum.
Mér finnst vera kominn tími á virkilega góða akstursbraut fyrir óvana bílstjóra. Ég vil sjá braut þar sem hægt er að líkja eftir öllum aðstæðum sem skapast í umferðinni hvort sem það er á malbikaðri braut, malarbraut og framkalla vetraraðstæður. Samhliða svæðinu mætti byggja aðstöðu fyrir aðrar akstursíþróttir. Um leið ættu að vera einir 10 bílar til afnota á svæðinu með tilheyrandi öryggisbúnaði. Ég efa það ekki að bifreiðaframleiðendur myndu vilja bjóða bíla í svona dæmi.
Til að svona megi verða að veruleika þá verður ríkið að koma að þessu í byrjun og ætti Vegagerðin að vera þar í forystu og byggja upp svæðið. Vegagerðin gæti nýtt sér svona svæði til að fá fram aðstæður sem gæti nýst við rannsóknir í vegagerð. Ökukennarar myndu örugglega notfæra sér aðstæður og fullt af bílstjórum sem vildu fá að prófa akstur við erfiðar aðstæður.
Það er aldrei of varlega farið og aðstæður geta breyst skyndilega.
Lélegt skyggni
Gullmóti í frjálsum
19.7.2008 | 02:06
Var að horfa á Gullmótið í frjálsum núna í þessum skrifuðum orðum:) Sem er svo sem ekkert merkilegt en það er hrein unun að hlusta á þá félaga, Valtýr Björn og Sigurbjörn Árna, hjá Rúv lýsa leikjunum. Sigurbjörn Árni Arngrímsson, annar þulurinn, er frábær og ótrúlega fróður um allt og alla sem eru á þessum mótum. Þegar einhver spennandi hlaup eiga sér stað þá er hann alveg ótrúlegur í æsingnum. Kapparnir á Stöð tvö komast ekki nærri honum í æsingi og þó er hægt að skilja hvað hann er að segja.
Á þessu móti er keppt er í fjölmörgum greinum á hverju gullmóti, en tólf þeirra eru gullgreinar ár hvert, sex karla og sex kvenna. Þeir keppendur sem sigra í sinni grein á öllum mótunum hljóta hlut í gullpottinum þar sem eru háar fjárhæðir. Til að fá hlut í gullpottinum þurfa sigurvegararnir líka að keppa á Lokamóti frjálsíþróttamanna sem haldið verður í Mónakó í september.
Vitlaust að halda LG í fjársvelti
18.7.2008 | 12:11
Að hafa bara eina nothæfa þyrlu í björgunarmálum er óþolandi ástand. Það verður að bæta úr þessu og dómsmálaráðherra ætti ekki að vera í vandræðum að laga þetta hjá Landhelgisgæslunni.
Það á líka að nota tækifærið og hafa eina þyrlu staðsetta á Akureyri svo þessi þjónusta standi öllum til boða.
Það er sorglegt að það skuli alltaf þurfa hörmulegt slys til að ráðamenn vakni og sýni þessum málum áhuga. Héldu menn virkilega að það myndi ekki kosta neitt að halda úti þyrluflota?
Þetta er svona svipað og maður velji sér ódýran tölvuprentara en gerir ekki ráð fyrir að prenthylkin eru oft dýrasti hlutinn í rekstrinum. Kannski léleg líking en samt.... Voða gaman að eiga 3-4 þyrlur ef maður þarf ekkert að gera við þær.
![]() |
„Farið að hrikta í“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það sem ég segi
13.7.2008 | 15:02


![]() |
Bush gefur gult ljós á árás |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Slæm hugmynd
13.7.2008 | 14:55
Þetta er það vitlausasta sem ég hef lengi heyrt. Erum við ekki að tala um löggæslu eða er bara verið að bjóða út gæslu? Á að bjóða út gæslu 2-6 tíma á dag? Eigum við að hringja í þessa verktaka og tilkynna ef við sjáum eitthvað "gruggugt"?
Hvað svo. Eiga þeir síðan að mæta á staðinn til að kalla út lögreglu? Eða verða þetta svona gæjar sem eiga að keyra um sérvalin svæði, svona hálfgerðir "rúntarar". Sennilega eigum við ekkert að hringja í þá, þeir eiga bara að þefa uppi allt sem ekki er í lagi.
Nei! Mér finnst þetta fyrirfram dauðadæmt. Þetta mun bara gefa falskt öryggi og virkar eins og atvinnuskapandi fyrir öryggisfyrirtæki sem nú eru starfandi og vinna sína vinnu sjálfsagt vel. Við myndum hvort eð er tilkynna allt í 112 ef eitthvað fer öðruvísi en það á að vera og viljum enga milliliði. Þarna er bara verið að sóa peningum að mínu mati.
Ég vil bara hafa menntaða lögreglu við þessi störf eins og í Reykjavík.
![]() |
Hverfagæsla boðin út í Kópavogi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Málverk no 5
11.7.2008 | 18:55