Móðgaður út í krumma

Ég er hálf fúll út í krumma. Pouty Tók mig til og fór út með matarafganga til að færa honum.   Reyndar gerði ég það í skjóli myrkurs svo allir íbúar svæðisins yrðu ekki varir við þetta.     Var alveg sannfærður um að  hrafninn myndi sko nota sitt langa nef til að finna kræsingarnar.   Cool

Svo kom næsti dagur og ég út í glugga. W00t Viti menn krummi kom og flaug yfir án þess að líta niður, hvað þá til hliðar og ég sem hélt að þeir myndi sko renna beint á lyktina.  Devil

Eins og ég var nú búinn að hæla þessum fuglum í gegnum tíðina.   Kannski ætti ég að læða svona einum hákarlabita með svo þeir fái almennilega lykt?   Whistling

En ég ætla sko ekki að gefast upp.   Næst fæ ég mér bara flagg til að sýna þeim hvar þeir geti matast næst.  Whistling

Alltaf er nú samt gaman að horfa á krumma leika listir í loftinu.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

..hmm... þetta segir ekkert um eldamennskuna.... eða .....

... nei ég bara .... hmm jú nó......ekki það þú kannt nú alveg að elda.... en maður veit nú hvernig Hrafn hugsar.... eða ekki....

Fanney Björg Karlsdóttir, 23.11.2008 kl. 16:06

2 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Alltaf svo óákveðin! hummmm?  

Þeir geta bara étið það sem úti frýs mín vegna.   

Marinó Már Marinósson, 23.11.2008 kl. 16:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband