Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009
Eldur við Kleifarvatn
28.7.2009 | 14:56
"Slökkviliði Grindavíkur barst óvænt hjálp við slökkvistarf á heiðinni austan við Kleifarvatn eftir hádegið. Starfsmenn Þyrluþjónustunnar eru að búa sig undir að fara í loftið og verður sérstök fata notuð til að freista þess að slökkva gróðureldana. Vatn verður sótt í Kleifarvatn og ausið yfir eldinn". ....
og Gæslan búin að eyða öllum peningum. Ekkert þyrluflug að óþörfu.
Eru þetta kannski ekki stórtíðindin sem sjáandinn sá fyrir að yrðu við Kleifarvatn? Eitthvað stórmerkilegt myndi gerast á þessu svæði. Spyr sá sem ekki veit.
Þyrluþjónustan til bjargar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ég spái
27.7.2009 | 18:23
Ég spái því að það verði engin stór jarðskjálfti í kvöld. En ég spái því að það verði nokkrir litlir, svona innan við 2 á Richter, eins og verið hefur undanfarin misseri. En samt .... Ég hefði aldrei getað spáð fyrir litla skjálftanum sem mældist rétt norðan við Fjarðarheiði í síðustu viku.
Hvar var blessuð konan rétt áður en hrunið mikla varð í október í fyrra? Hefði betur varað við þeirri vá.
Spurt um jarðskjálftaspádóm | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |