Bloggfærslur mánaðarins, október 2008
Til hamingju stelpur
30.10.2008 | 20:31
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er komið á EM 2009 með því að sigra Íra 3-0 í kvöld.
Ég hef alltaf sagt að það eigi að setja peninga í uppbyggingu á kvennaknattspyrnunni og segi: Nú er lag.
Ísland á EM 2009 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Frétt dagsins
30.10.2008 | 14:34
Þetta er nú besta umfjöllun á frétt sem ég hef séð lengi. Tja .... Ekkifréttdagsins?
Miklu betra fyrir MBL að taka þessa frétt út, nú eða skrifa upp á nýtt svo skilningslaus lesandi eins og ég skilji þessa frétt.
Meiðyrðamáli vísað frá dómi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ólafur Stefánsson
26.10.2008 | 21:18
Var að hlusta á viðtalið við Ólaf Stefánsson handboltamann og heimspeking í þættinum Sunnudagskvöld með Evu Maríu áðan. Þetta var hreint út sagt frábært viðtal. Þessi maður er bara einstakur karakter og fær mann virkilega til að hugsa. Það ætti að ráða hann á stundinni hingað heim til að stappa jákvæðum hugsunum í þjóðarsálina. Tala nú ekki um hugmyndir hans um skólamál.
Það er allt hægt.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Trúðurinn alltaf jafn góður
22.10.2008 | 17:10
Ætla að horfa á Trúðinn í kvöld. Alltaf jafn uppátækjasamur og skemmtilegur.
Snjór
20.10.2008 | 18:51
Var að horfa á fréttir á Stöð 2 rétt áðan. Sá að snjóélin sem eru hér á höfuðborgarsvæðinu eru greinilega tilkomin vegna snjóframleiðsluvélarinnar norður í Hlíðarfjalli. Ég er að viss um það.
Prófum að slökkva á henni og athugum hvort veðrið lagist ekki?
Veljum íslenskt
15.10.2008 | 14:49
Hafi einhvern tíma verið nauðsynlegt að velja íslenskt, þá á það svo sannarlega við í dag. Ég hvet alla sem lesa þetta blogg að velja nær eingöngu íslenskar vörur, hvort sem þær eru af náttúru hendi eða unnar vörur. Allt skiptir máli ef það er hægt að velja á milli. Veljum íslenskt grænmeti, mjólkurvörur ofl. Þannig hjálpum við hvort öðru upp úr þessum öldudal. Verum meira saman og sinnum börnunum. Svo kostar ekkert að brosa.
Meira hvað maður er hátíðlegur.
Er pirraður á þér Darling
13.10.2008 | 13:25
Að hlusta á Alistair Darling og Gordon Brown er útrúlegt og að Darling skuli halda áfram þessum árásum á okkur er með eindæmum. Ekki hefði hann hagað sér svona gangvart t.d. Þjóðverjum.
Ætli bretar átti sig á hvað þeir eru búnir að gera okkur mikinn skaða og hversu hlutfallslega mikið tjónið er fyrir Íslendinga hér heima?
Ég er að vísu búin að lesa commetin á netblöðum þar í landi og er því frekar rólegur gangvart fólkinu þar en auðvitað er búið að skemma rosalega fyrir okkur. Flestum þar í landi finnst okkur hafa verið sýndur rakinn dónaskapur og svívirða.
Það skildi þó ekki vera að það ætti eftir að koma í ljós að sumir af þessum sparifjáreigendum í Bretlandi hafi ekki átt neitt inni hjá íslensku bönkunum í upptalningunni yfir þau stofnanir og sveitafélög? Svo munu eignir bankanna ganga upp í þessar skildir og vel það.
Að lokum verð ég nú að segja að mér finnst ótrúlegur undirlægjuháttur breskra fjölmiðla að trúa endalaust bullinu frá Darling og Brown án þess að kanna málin gagnrýnilaust.
Þeir hugsa: Hvað er eitt lítið land norður í Atlandshafi?
Förum í mál við þessa kappa.
Ég var búinn að segja að ég ætlaði ekki að skrifa um fréttir á mbl. Reyni bara að muna það næst.
Heitir sparifjáreigendum aðstoð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 13:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þetta er nú meira!!!!
11.10.2008 | 20:33
Maður má ekki bregða sér af bæ og þá er allt komið í kalda kol í efnahagsmálum.
Svo missti ég líka af snjókomunni í síðustu viku. Var að skoða myndir hjá prinsessunni og sá að það hafði snjóað.
Verum sterk og hugsum jákvætt til allra. Þetta kemur allt.