Hjólað og hjólað

Jæja,  ég hef verið voða duglegur að hjóla eftir að ég eignaðist nýja hjólið.  Keypti mér meira segja hjólabuxur og setti nagladekk undir hjólið svo ég kæmist eitthvað í hálkunni.   

Það hefur verið hálf fyndið á læðast í vinnuna í þröngum buxum.  Smile   Enda tvisvar búið að flauta á mig þegar ég hef verið að læðast yfir gatnamótin svona snemma dags.    LoL    

Í morgun var snjókoma þegar ég arkaði af stað.  Ég hugsaði með mér hvort þetta væri nú ekki full langt gengið?   Bíllinn heima í hlaði og ég með vinnufötin í bakpokanum og kappklæddur fyrir vetrarferð.   Sideways   En þegar ég kom í vinnuna, þá var ég voða ánægður með dugnaðinn og meira segja ákveðinn í að hjóla aftur heim að vinnudegi loknum. Whistling  Cool  Enda lít ég fyrir að vera algjört nörd með hjólagleraugun.   Grin 

poor_baby.jpg 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband