Eitthvað fyrir aðdáendur Lord of the Rings
1.6.2009 | 21:23
Datt hér niður á nýja útgáfu af Hringadrottinssögu. The Hunt For Gollu
Flott útgáfa og kemur með nýjan vinkil. Svolítið róleg útgáfa en gaman samt. Góða skemmtun.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fuglasöngur þagnar aftur í Fossvogsdal
28.5.2009 | 20:41
Enn og aftur var vaðið af stað of snemma í Fossvogsdalinn til að slá gras. Ég segi þetta af því að enn liggja fuglar á hreiðrum og því leitt að sjá slátturvélarnar vaða yfir svæðið í gær þar sem mófuglar verpa.
Í fyrra var sami háttur hafður á og það má segja að fuglasöngurinn hafi þagnað í dalnum eftir það.
Sama gerist núna í ár, sýnist mér.
Ætla að senda Kópavogsbæ línu og biðja menn þar á bæ að hafa þetta í huga framvegis.Hjóladagar hjólalíf
26.5.2009 | 22:26
Jæja, nú er hjóladögum að ljúka. Þið vitið, Hjólað í vinnunna. Ég hef verið frekar duglegur og hjólað alla daganna nema einn dag en þá þurfti ég að nota flugvél til að komast í og úr vinnu. En það telst víst ekki með.
Ég vissi að yfirmaður minn var á nálum (svona í gríni) þegar þetta átak var í gangi. Segjum að 50 þúsund manns rjúki til og fari að hjóla út í umferðinni óþjálfað í hjólreiðum. Slysalaust.
Í morgun þegar ég var að hjóla í vinnunna þá þurfti ég, sem oft áður, að beygja við blindhorn sem er svo sem ekki frásögu færandi, enda hafði oft farið þar um og oftast tekið beygjuna á ferðinni. En í morgun ákvað ég að nánast stoppa og kíkja áður en ég skellti mér í beygjuna. Og hvað gerðist? Það kom hjólreiðakona á fullri ferð á móti mér. Við rétt sluppum við hvort annað. Hefði orðið laglegur skellur ef ég hefði brunað eins og hina daganna. En endaði vel. Hjúkket aldrei of varlega farið. Nú er það hjálmur, hjólabuxur og spegill til að kíkja fyrir horn.
Get Back með George Harrison
23.5.2009 | 15:55
Flestir sem hafa heyrt lagið Get Back vita að það er eftir Paul McCartney og sumir halda að það hafi verið skot á Yoko Ono.
Hérna er þetta lag í flutningi George Harrison. Harrison hefur trúlega flutt þetta lag þegar hann var að gera plötuna All Things Must Pass eða um árið 1974? Svolítið öðruvísi útsetning en gaman af þessu samt.
Þetta er ein besta fréttin í dag
21.5.2009 | 22:25
Var að lesa um frétt á mbl.is þar sem segir frá hóp Íslendinga sem er þessa daga staddur í Palestínu í þeim tilgangi að gefa einstaklingum gervilimi sem misst hafa fæturna af völdum átaka á svæðinu undanfarin ár.
Hópurinn gaf í dag ungum palestínskum manni gervifætur sem misst hafði báða fætur sína. Fyrst fyrir fjórum annan fótinn og í vetur seinni fótinn af völdum skriðdreka.
Ég held að það sé ólýsanleg tilfinning að geta skyndilega gengið aftur. Umræddur maður átti ekkert von á því að geta fengið hjálp á næstunni en kom óvænt á staðinn þar sem Íslenski hópurinn var staddur og var kominn með gervifætur og farinn að ganga eftir tveggja tíma undirbúning.
Alltaf gaman að lesa um svona gleðilega frétt.
Fótalaus en kom gangandi heim | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þvaglegt próf!
18.5.2009 | 22:05
Ja hérna. Allt er nú hægt að mæla. Nú er það plastflöskurnar. Nýjasta rannsóknin sýnir að þeir sem drekka úr flöskum úr pólýkarbónatplasti hafa mun hærri styrk af Bisfenól-A (BPA) í þvagi en þeir sem ekki drekka úr slíkum flöskum. Það sem ég segi. Lítil Kók og "pilli í brán" eru alltaf bestir.
Er þá glerið ekki grænna en plast?
Plastefni mælist í þvagi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ég er bara pirraður út í engan
15.5.2009 | 12:18
Þessir bretar og með fúlan forsætisráðherra í fararbroddi.
Danir eru afslappaðastir Evrópubúa samkvæmt nýrri könnun sem greint var frá í morgun. Bretar eru hins vegar uppstökkastir og reiðast oftast.
Ítalir svekkja sig hins vegar helst á lélegum lífsgæðum sínum en lélegur matur og þjónusta á veitingastöðum pirrar Frakka mest.Svíar og Norðmenn taka það hins vegar sérlega nærri sér hæðist aðrir að heimalöndum þeirra.
Hvað hefðu Íslendingar sagt ef þeir hefðu verið með?
Bretar styggastir Evrópubúa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ný færsla
30.4.2009 | 22:11
Jæja þá er að skrifa smávegis hérna enda orðið langt síðan síðast. Enda vorið komið og krían mætt á svæðið. Apríl er búin að vera frekar blautur mánuður en vonandi verður maí mánuður betri.
Sjálfur hef ég reynt að vera duglegur að fara út og hreyfa mig enda veitir mér ekki af. Svo er hjólið tekið fram reglulega og hjólað.
Selfoss
15.4.2009 | 23:35
Fór í dag austur á Selfoss (Dallas suðursins). Hafði ekki komið þangað í tæpt ár. Ljótt að segja frá. En nokkrar ástæður liggja að baki heimsóknarleysis míns. Ekki meir um það.
En mikið hefur Selfoss stækkað. Eitt var á hreinu. Veðrið var hreint út sagt frábært.
Hjól og frambjóðendur
14.4.2009 | 22:48
Hjólaði þó nokkuð um liðna helgi og svo í vinnuna í dag. Voða hollt og gott. Stefnan sett austur fyrir fjall á morgun en samt ekki á reiðhjóli.
Horfði á frambjóðendur í kvöld. Óttalega kljént. Sama tuggan hjá gömlu flokkunum en Ástþór var helvíti góður eða þannig.
Skil ekki hvernig Katrín hjá Vinstri ætlar bæði að hækka skatta og lækka um leið launin? Hjá hverjum þá helst?