Hjartastuðtæki og skjót viðbrögð björguðu mannslífi

Þar sem ég þekki til viðkomandi atviks þá langar mig að blogga aðeins um þessi mál.

Það er mín skoðun að þessi svo kölluð hálfsjálfvirk hjartastuðtæki séu ein mesta bylting sem komið hafa fram á síðari árum í endurlífgun, fyrir utan fræðslu og menntun í skyndihjálp.   Mér finnst að svona tæki eigi að vera í öllum lögreglubifreiðum á landinu sem og á opinberum stöðum þar sem allir hafa aðgang að þeim.  Það er mjög auðvelt að læra á þau og því nauðsynlegt að hafa þau sem aðgengilegust fyrir alla.  

Rauði kross Íslands hefur séð um skyndihjálparnámskeið undanfarin ár og hvet ég alla til að sækja þessi námskeið reglulega. 

 

Innskot:  Gísli Björnsson, Deildarstjóri sjúkraflutninga hjá SHA, greinir nákvæmar frá þessu hér í athugasemdir hér  fyrir neðan þannig að fréttin sé rétt.   Ég sem hélt að Skessuhorn hefði verið með nákvæma frásögn af þessu  Endilega lesið athugasemd Gísla, þið sem hafið áhuga.


mbl.is Hjartastuðtæki og skjót viðbrögð björguðu mannslífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Sæll Marinó.

Ég vona að þú sért að ná vopnum þínum aftur og allt gangi vel hjá þér.

Ég rakst á að þú varst að blogga um frétt í Mbl.  Þar sem okkur  báðum er málefni endunlífgunar skild sendi ég eftirfarandi leiðrétttingu um fréttina  til Skessuhorns en hún kom upphaflega þaðan.

"Ég vil hér með leiðrétta rangfærslur í frétt ykkar um að lögreglan hafi bjargað manni í hjartastoppi á Garðavelli.

Það kemur fram í frétt ykkar að þetta hafi skeð sl. laugardag en boð berast til sjúrkaflutninganna á Akranesi kl. 15:08 sl. sunnudag um að maður væri í hjartastoppi á Garðavelli.

Ég vil  taka það fram að sjúkraflutningamaður sem sagður var vera á frívakt var kallaður út strax af sjúkraflutningsmönnum þegar boð  berast til sjúkraflutninga um hjartastoppið til að fara beinustu leið á staðinn hann bjó við golfvöllin.  Sjúkrabifreið kom síðan einni og hálfrimínutu á eftir  með tvo neyðarsjúkraflutningamenn innanborðs.

Notað var tæki úr lögreglubifreiðinni til að gefa stuð en síðan voru tæki ásamt lyfjum til endurlífgunar notuð úr sjúkrabifreiðinni til áframhaldandi meðferðar.

Ég vil taka þetta fram, þar sem að lesa má út úr fréttinni að það hafi verið tilviljun að lögreglan hafi hitt þarna sjúkraflutningamann á gangi, en hann var eins og áður segir á leið í útkallið.

Ekki kom  fram hvað varð um manninn, hann hélt ekki áfram að spila golf, heldur var hann fluttur í sjúkrabíl á Sjúkrahús Akraness og síðan til ítarlegri skoðunar  á Bráðamóttöku Landsspítala Háskólasjúkrahús.

Ég er ekki að gera lítið úr vinnu lögreglunnar við þeirra störf á vettvangi en rétt skal vera rétt."

kv.

Gísli Björnsson

Deildarsjóri sjúkraflutninga hjá SHA

Gísli Björnsson (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 21:58

2 Smámynd: Guðrún Indriðadóttir

það er ánægjulegt að lesa þegar svona vel tekst til þetta tæki bjargar mannslífi og þá þarf bara að leggjast á eitt og koma þeim á fleiri staði og kenna fólki á græjuna

Guðrún Indriðadóttir, 10.11.2008 kl. 21:59

3 Smámynd: Landi

Það mætti kannski einnig bæta þeim td í fjallaskála víðsvegar um landið ef þau eru ekki nú þegar komin í skála ferðafélagsins eða aðra einkaskála,ekki veit ég hvort þessi tæki eru í langferðabílum "rútum" en það kæmi mér ekki á óvart að þessi tæki gætu komið að góðum notum eða jafnvel bjargað mannslífum á vegum vítt og breytt um landið.

Ég man nú ekki alveg hver það er sem selur svona tæki,en mig minnir samt að ég hafi lesið það að fyrirtækið Eirberg selji þau.

Tek undir með þér að allir ættu að gefa sér tíma og sækja Skyndihálparnámskeiðin.

Landi, 10.11.2008 kl. 22:05

4 Smámynd: Landi

Kannaði heimasíðuna hjá Eirberg og þeir eru með svona tæki.

http://www.eirberg.is/primedic_1003_292774.news.aspx

Landi, 10.11.2008 kl. 22:08

5 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Takk fyrir commetin.    Það er fleiri sem flytja svona tæki inn, t.d. Donna hf, A Karlsson og Icepharma svo einhver séu nefnd.  

Fyrir mestu er að hafa svona tæki á þeim stöðum þar sem flestir vita af þeim því tíminn skiptir mestu máli; 4-7 mínútur í mesta lagi.

Marinó Már Marinósson, 10.11.2008 kl. 22:16

6 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Sæll Gísli og takk fyrir að leiðrétta þessa frétt og takk fyrir kveðjuna. 

Rétt skal vera rétt.  Að sjálfsögðu vil ég ekki gera lítið úr neinum í þessari umfjöllun en taldi að heimablað hefði fjallað rétt um þetta mál enda hef ég reynt að vera ekki að blogga mikið um eitthvað sem tengist vinnunni.  Fyrir mér var það aðalmálið að viðkomandi fékk hjálp.  Við tveir vitum hversu mikils virði það er að hafa vel búna sjúkrabíla og þjálfaðan mannskap eins og er t.d. hjá ykkur enda skiptir tíminn miklu máli.   Að lögreglan skuli hafa svokölluð sjálfvirk hjartastuðtæki í bílum sínum er bara til bóta að mínu mati.     

Marinó Már Marinósson, 10.11.2008 kl. 22:45

7 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Sammála Marinó, þetta er bylting.

Herdís Sigurjónsdóttir, 11.11.2008 kl. 08:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband