Laugardagslögin

Var að horfa á Laugardagslögin áðan.   Öll lögin flott. Held að lag Magnúsar Þórs eigi eftir að heyrast oft.    En mér finnst Hafdís Huld Þrastardóttir vera lagahöfundurinn sem á flottustu lögin í keppninni.   Eitt besta lag sem ég hef heyrt lengi lengi er einmitt eftir hana og heitir Boys and Perfume  og var flutt í 1. þættinum.  Meiri háttar lag.  Og hef ég nú oft heyrt flott lög.   Whistling   En tek það fram að lagið The Girl in the Golden Dress er líka flott.

http://www.ruv.is/laugardagslogin/  Endilega hlustið á Boys and Perfume og njótið.

http://youtube.com/watch?v=wRonjql3si4


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta B Helgadóttir

The Girl in the golden dress finnst mér flottast. Bjartur var leikfélagi Arnars míns þegar þeir voru smástrákar, kannski er ég ekki hlutlaus þess vegna

Marta B Helgadóttir, 2.12.2007 kl. 12:13

2 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Bjartur er flottur, engin spurning og eitthvað svo afslappaður á sviðinu. Hann myndi ná langt í keppninni næsta vor, engin spurning.    En svo er spurning hvor við eigum nokkuð að vera að velta vöngum yfir möguleikum þar sem keppnin er hvort eð er svo pólitísk milli þjóða.  Hvað sem því líður þá eru komin nú þegar fram frábær lög sem landinn mun njóta hvort sem þau falla öðrum þjóðum í geð eða ekki. 

Marinó Már Marinósson, 2.12.2007 kl. 13:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband