Smekklaust!

„Hvað er hann að draga veikindi sín fram í dagsljósið núna?“ sagði Hörður Torfason hér á mbl.

Hvað er Hörður að fara?  Angry  Mér finnst þessi ummæli hans fyrir neðan allar hellur og hann skuldi Geir afsökunarbeiðni.   

 


mbl.is Hænuskref í rétta átt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: TómasHa

Ég er alveg sammála þér, hann hefði átt að segja allt sem hann sagði, en bara sleppa að minnast á veikindin. Það var engin þörf á því.

TómasHa, 23.1.2009 kl. 20:58

2 Smámynd: Alma Jenny Guðmundsdóttir

Ég er sammála ykkur - her er um afar ósmekklega athugasemd að ræða að hálfu Harðar Torfasonar.  Hans er skaðinn á þessum orðum.

En ég mæti á mótmæli á Austurvöll á morgun, til að hlusta þar á ansi áheyrilega ræðumenn.  Hörður hefur eingöngu staðið fyrir þessum fundum - en er ekki ræðumaður.

Enn og aftur - óska þeim báðum ISG og Geir Haarde góðs bata - en veikindi þeirra mega ekki verða til þess að hér reki enn meir á reiðanum eins og þar segir.  Neyðarstjórn strax.

Alma Jenny Guðmundsdóttir, 23.1.2009 kl. 21:38

3 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Já satt,  Tómas og ég er sammála þér Alma Jenny  auðvitað á fólk að mótmæla og koma sjónarmiðum sínum á framfæri.  

Kannski rekst ég bara á þig með kakóbrúsann þinn á morgun.  hehe

Marinó Már Marinósson, 23.1.2009 kl. 21:48

4 identicon

Afhverju skuldar Hörður  Geir Haarde afsökunarbeiðni ? það get ég ekki skilið.  Þetta er ótrúleg hræsni,  þegar maður eins og Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún hlusta ekkert á hvað þjóðin er að segja við þau, þá á þjóðin að hlusta og gleyma því hvernig búið er að fara með hana.  Já ég er sammála Herði Torfasyni og Jónasi Kristjánssyni fólkið verður að halda sínu striki og halda áfram að mótmæla.

Við vonum að þeim batni Geir og Ingibjörgu fljótt og vel, og þau gangi í fótspor fyrri ráðherra Jóhanns Hafsteins og Magnúsar Kjartanssonar að  það verði  endurskoðaður niðurskurður heilbrigðismála sem er fyrirhugaður.

Jóhanna (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 21:51

5 Smámynd: arnar valgeirsson

ég er ekki sammála ykkur. óheppilegt orðaval hjá herði en hann segir líka "

„Það er til dálítið sem heitir einkalíf og svo er stjórnmálalíf. Það er tvennt ólíkt.“ og undrast að hann hafi komið með þennan punkt akkúrat nú.

það geri ég hinsvegar ekki og finnst ekkert sérlega smekklegt að hóa á fjölmiðlafund og byrja á því að koma með þessa frétt þegar stjórnin er að liðast í sundur, hálf þjóðin brjáluð og fólk vill stjórnina frá.

en þau ætla að halda áfram og margir ætla að mótmælum linni því geir er veikur og ingibjörg líka.

veikindi þeirra eru ekki málið hér. það er stjórn þeirra á landinu og hún er að flestra mati afleit.

en ég, líkt og vonandi allir aðrir, vona að þau nái sér af sínum veikindum.

arnar valgeirsson, 24.1.2009 kl. 00:26

6 identicon

Auðvitað vilja allir þeim góðan bata.  Málið er bara það,  að þau hafa enga heilsu á að stjórna landi sem er á heljarþröminni. Það bjargar þjóðinni engin geislameðferð. Þetta eiga foringjarnir að vita sem eru veikir, og þessvegna segja af sér. svo hægt sé að bjarga því sem bjargað verður.

Ef skrifað verður undir þessi afarlán sem við erum krafin um vegna einhverrar óráðsíu bankanna. sem mér skilst að eigi að gera. Þá má minna á afarkosti sem þjóðverjar skrifuðu undir eftir fyrri heimsstyrjöld. Upp úr því fæddist nasisminn og Hitler . Það getur nú kannski komið lítill 'Isl Hitler út úr allri þessari spillingu. Hver veit?

Jóhanna (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 09:30

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Er ekki bara verið að blanda of miklum tilfinningum inn í málið?

Vissulega óska ég þeim GHH og ISG alls hins besta á þeim tímum sem framundan eru hjá þeim í þeirra einkalífi! En það er einmitt málið þetta er þeirra einkalíf og þar sem ég þekki þau ekki persónulega get ég aðeins haft samúð með þeim upp að vissu marki.

Í mínum huga breytir þetta engu. Ég er algjörlega jafn bjargföst á þeirri skoðun að ég vilji ríkisstjórnina burt, ég vilji breytingar í seðlabankanum og fme.

Hrönn Sigurðardóttir, 24.1.2009 kl. 11:24

8 Smámynd: Kristján Logason

----
Wrong answer 101


Sem blaðamaður þá setur þú viðmælanda inn í málið og spyrð hann spurningar.
Síðan kveikir þú á upptökutækinu og spyrð hann óræðrar spurningar sem engu máli skiptir í raun nema sem framhald af fyrri spurningu.

Viðmælandi þinn sem nú á traust þitt. Svarar samviskulega.

Ef þú vilt láta viðmælanda líta enn ver út skellir þú í miðri ræðu hans spurningu sem hann átti alls ekki vona á að verða spurður.

Með þessu hefur þú séð til þess að viðmælanda vefst tunga um tönn.

Þegar þetta er klippt og birt er breytt um fyrirsögn.

------------


Þetta eru svo augljós vinnubrögð að ég á ekki til orð.
Það er hafið stríð hér á landi sem aldrei fyrr um orð og tjáningarfrelsi.
Allir þeir sem ekki tjá sig með samskonar orð og setningarskipan og valdstjórnin eru úthrópaðir á torgum með fáránlegum svívirðingum sem menn ættu ekki einu sinn að láta út úr sér í einrúmi.

Stjórnvöld gera allt til þess að fólkið í landinu taki ekki af þeim völdin og landið sem þau telja sig ein eiga og geta ráðstafað

Þetta þarf að stöðva



Við erum þjóðin

Landið er okkar

Kristján Logason, 24.1.2009 kl. 12:14

9 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Ég hef fylgt Herði í gegnum þetta allt og jafn óánægður með ríkisstjórnina eins og þið eruð væntanlega flest hér.  Var ánægður að Hörður skyldi vera kosinn maður ársins og allt. 

Má vera að blaðamaður hafi afvegaleitt Hörð enda var viðtalið við hann ekkert athugavert að öðru leyti að mínu mati. Hrönn S segir í raun allt sem segja þarf hér.    Hrönn klikkar ekki.  

Sjálfur gekk ég í gegnum áfall á síðasta ári vegna veikinda og þekki því persónulega hvernig það er og hverjum á að segja hvað og hvað ekki þegar kemur að svoleiðis málum.  Geir var jú bara að frétta þetta sl. þriðjudag ef ég man rétt og því vil ég ekki trúa því að hann hafi notfært sér veikindi sín í pólitískri refskák. Vil bara ekki trúa því að nokkur leggist svo lágt.   

Marinó Már Marinósson, 24.1.2009 kl. 12:46

10 identicon

Fólk með valdasýki gengur yfir lík til að halda völdum.  Það er svo einfalt.

Jóhanna (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 19:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband