Hugmynd verður að veruleika

Set hér inn á bloggsíðuna mína mjög persónulega mynd sem ég málaði handa pabba mínum nú í sumar.   Myndin er máluð (frjálslega) eftir ljósmynd af hljómsveit sem hann spilaði með hér á árunum áður en hún hét IB Quintett og starfaði á Austurlandi í rúm 20 ár. 

  Ég sagði við pabba að hann yrði nú að eiga málverk af hljómsveitinni og skellti mér í verkið. Smile Þar að auki yrði ég að spreyta mig á einni svona eftirhermumynd, enda gaman að breyta til og mála eitthvað annað en landslagsmyndir.     Blush   Andlitsmyndir eru að vísu ekki mín sterkasta hlið í málun svo ég reyndi bara að hafa svipinn af þeim og forðaðist smáatriðin.   Blush Ég var nú ekki viss að ég réði við þetta en hér er myndin svo þið takið viljann fyrir verkið. Ég er mjög ánægður að hafa reynt að mála myndina og má segja að hugmynd hafi orðið að veruleika.  

Þær myndir sem ég hef málað í sumar, (þessi líka) eru nær eingöngu málaðar með spaða í stað pensils og get sagt að það er gaman.  Myndin er máluð með akríl á 50x60 cm striga.   

blogg1   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er hljómur í þessari mynd, sérstaklega nikkunni.

Pjetur Hafstein Lárusson (IP-tala skráð) 16.8.2008 kl. 22:29

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Þessi er flott Marinó, er pabbi þinn á hljómborðinu?

Ég fékk hugmynd, tala við þig um hana betur eftir helgina

Herdís Sigurjónsdóttir, 17.8.2008 kl. 10:04

3 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Pjetur Hafstein;   já, ég hafi tónlist ef það er smellt á myndina.

Herdís;   Hann er harmonikkuleikarinn.     Það veit ekki á gott þegar þú færð hugmynd. 

Marinó Már Marinósson, 17.8.2008 kl. 12:18

4 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

já ég sé það núna ....  jú bíddu bara Marinó þessi er bara nokkuð góð

Herdís Sigurjónsdóttir, 17.8.2008 kl. 14:51

5 identicon

Úff, Herdís með hugmynd.......umhhhhhhhhhhhhh ég vona bara að hún tengist skemmtilegum hitting

Ég bíð spennt eftir að leiknum sem byrjar um klukkan eitt......ætla sko að vaka!

Áfram Ísland!!!

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 17.8.2008 kl. 22:45

6 identicon

Rosa flott mynd Marinó, þú ert nú bara algjör listamaður !

Anna Danmörku (IP-tala skráð) 20.8.2008 kl. 10:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband