Snjall dómari?

Hvað ef nemandinn hefði skrifað önnur tvö orð?   Mér finnst þessi dómari klókur, enda gott að einblína ekki of á það neikvæða. Grin   Um að gera að draga fram það jákvæða í öllum.    

En stráksi klaufi að gleyma punktinum, úr því að hann vandaði sig svona mikið að setja tvö orð á blað.  Devil

Skildi hann hafa setið allan tímann inni í stofunni á meðan aðrir voru að klára sínar ritgerðir?  neeeee Whistling  Grin


mbl.is Fékk einkunn fyrir tveggja blótsyrða ritgerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Indriðadóttir

þetta er nú það skondnasta sem ég hef heyrt lengi eða séð öllu heldur.  Góður

Guðrún Indriðadóttir, 1.7.2008 kl. 16:32

2 Smámynd: arnar valgeirsson

þetta voru nokkuð beinskeytt skilaboð frá nemanum og ekki hægt að sniðganga algjörlega.

þegar ég var í vélskóla sem unglingsgrey, kenndi hansi færeyingur okkur nánast allt. hann hamraði á því þegar við vorum við rennibekkinn að smíða og sníða, bullur og annað dót sem ekki mátti skeika um nanómeter, hvernig við skyldum standa með vinstri fót fram og hægri fót aftur, með axlirnar svona og hendurnar þannig...... að  maður var sko alltaf réttur við hamaganginn.

svo kom próf og ein spurningin var: hvernig skal staðið við rennibekkinn?

Kobbi Jóns svaraði:

nákvæmlega eins og hansi segir.....

og hann fékk auðvitað rétt

arnar valgeirsson, 1.7.2008 kl. 23:59

3 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Svona eiga kennarar að vera.    Engar reglustikur takk.

Marinó Már Marinósson, 2.7.2008 kl. 15:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband