Veraldleg gæði umfram allt eða hvað?

Heyrði um daginn góða sögu af háöldruðum hjónum sem höfðu gaman að ferðast um á bílnum sínum þó aldurinn væri farin að færast yfir þau.    Gamli maðurinn var ennþá með bílpróf og hafði mjög gaman að keyra. Hann vildi endilega drífa sig í, að endurnýja bílinn sem þau áttu.  Gamla konan skildi nú ekkert í þessari vitleysu í honum; að láta sér detta í hug að fara að eyða peningum í svona bruðl og þau komin nánast á grafarbakkann.  Sá gamli hélt nú ekki.  "Við skiljum bílinn bara eftir."

-------------------------------------------

Svo var það sölumaðurinn í landbúnaðardeildinni sem hafði frétt af háöldruðum bónda út á landi sem var sagður moldríkur. Sölumanninum hafði verið bent á, af sveitunga bóndans, að sá gamli myndi örugglega kaupa af sölumanninum landbúnaðartæki.   Sölumaðurinn ákafi, dreif sig í að hringja í bóndann og vildi endilega selja honum skítadreifara enda hefði hann frétt að bóndinn væri ríkur og sagði honum að það væri sko ekkert vit í að taka með sér alla þessa peninga sem hann ætti ofan í gröfina.  Því væri tilvalið fyrir hann að láta drauminn rætast og kaupa nýjustu gerð af svona tæki,  sá gamli var nú ekki á því að láta selja sér skítadreifara.

"Nei ég held að það sé ekkert auðveldara að taka með sér skítadreifara í gröfina".   

-------------------------------------------

Það sem gefur þessum sögum gildi er, að þær eru sannar og menn kunna sko að svara fyrir sig á spaugilegan hátt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Nú er kominn valkostur fyrir þá sem vilja losna við augl af bloggsíðunni sinni. Sjá hér

Marta B Helgadóttir, 19.2.2008 kl. 16:58

2 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Marta    Ég er búinn að venja mig á að loka hægra auganu. 

Berglind Eva,  Já, enda sögurnar sannar.

Marinó Már Marinósson, 19.2.2008 kl. 18:38

3 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Ég var að skoða linkinn sem Marta sendi mér hérna fyrir ofan út af auglýsingunni hægra megin á síðunni.   Þetta er frábær hugmynd.  Nú er hægt að kaupa sig frá auglýsingunni.   Kannski ætti RÚV að bjóða sínum áskrifendum þetta.  Hækka áskrift um ca. 10-20 krónur og út með allar auglýsingar úr sjónvarpinu.  

Marinó Már Marinósson, 19.2.2008 kl. 20:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband