Skrif í skjóli veggjar og skokk

Geri smá pásu á bloggið og læsi í smá tíma enda lélegur penni. Opið fyrir þá sem hafa áhuga.

 Ég fór í bæinn eins og flest allir höfuðborgarbúar og landsbyggðafólk sem sá sér fært að skreppa í bæinn.   Ég veit um nokkra sem komu langt að og smelltu sér í hlaupið.  Þetta eru jú bara hetjur.  Ég var svo slappur að ég nennti ekki einu sinni í 3ja km hlaupið.  Vinnufélagar mínir hlupu fyrir Rauða krossinn. Meira en ég get sagt. Hér með stefni ég að því að hlaupa minnst 3 km á næsta ári.  Eins og einhver sagði: :)  Það er nú eitt ár þangað til. 365 dagar.

Það var mjög gaman í miðbænum í gær, allt svo afslappað og skemmtilegt.  Veðrið hjálpar alltaf til. 

Litli bróðir og co. buðu mér í kvöldmat (stórveisla) og eftir það var rölt niður í fjöru til að sjá áramótaljósin eða þannig.   Sem sagt flottur dagur.

Í dag (sunnudagur) rölti ég úr Kjarrhólmanum niður á Hrísateig til að sækja farskjóann minn.  Ma fékk sér smá gos í gærkvöldi. Smile 65 mínútna ganga.  Svo verður maður að nota nýju gönguskóna Smile Assgoti góðir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kæri vinur, takk fyrir að blogga á ný !!!

Fyrir mér er bloggið hobbý ifg er ekkert að spá í hvort ég sé "góður " penni eða ekki. Það að hafa gaman að þessu er fyrir mestu. Ég skrifa frá hjartanu og um það sem mér langar til á þeim tíma sem ég er að blogga, stundum kemur jú fyrir að manni er heitt í hamsi eða með sterkar skoðanir á einhverju og þá tjái ég mig um það.´

Marinó, fylgdu hjartanu því þá ertu heimsins besti penni

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 21.8.2007 kl. 13:40

2 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Takk fyrir það Linda mín.  Já, þetta er sko hobbý og hef svolítið gaman af.   Ég á örugglega eftir að segja meira af mér og þessu daglega í kringum mig.

Marinó Már Marinósson, 21.8.2007 kl. 17:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband