Hjólað í vinnuna

Jæja þá byrjar tímabilið  "Hjólað í vinnuna og heim aftur" eða þannig.    Smile   Ég ætla að taka þátt í þessu en þó í rólegheitum að þessu sinni.  Í fyrra stóð ég mig að verki við að hjóla eins og andskotinn út um allt til að hala inn kílómetratölu.   Blush

Sá reyndar að þeir sem voru eftstir í fyrra á landsvísu voru að hala inn kílómetratölu eins og hver og einn starfsmaður þyrfti að hjóla minnst 100 km á dag, bara til að komast í vinnu og heim  aftur.  Það nær enginn að toppa svoleiðis framkomu.  Nei grín, en samt var ótrúleg km tala á bak við hvern og einn.  LoL

Nei best að vera bara með og láta sína 8 km duga á dag.    Cool  Já og fara varlega og hafa gaman að. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband